Undirbúningsnám í flugumferðarstjórn í óvissu Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 15. október 2012 18:10 Þetta er í þriðja skipti á fjórum vikum sem þetta gerist að sögn Kára og er það mikið högg fyrir rekstur skólans. MYND/HEIÐA
Flugakademía Keilis á Keflavíkurflugvelli verður fyrir mörg hundruð þúsund króna tekjutapi þegar lokað er fyrir æfinga- og kennsluflug vegna manneklu í flugturninum, segir skólastjórinn. Hann segir að fleiri flugumferðarstjóra vanti en Isavia hefur beðið Keili um að hætta að þjálfa nemendur í undirbúningsnámi í flugumferðarstjórn. Allt æfinga- og kennsluflug var bannað á Keflavíkurflugvelli í gær vegna þess að ekki tókst að manna vakt flugumferðastjóra með skömmum fyrirvara og voru því einungis þrír flugumferðarstjórar á vakt en ekki fimm eins og krafist er á þessum árstíma. „Við erum staðsettir á Keflavíkurflugvelli og í gær þýddi það að okkar vélar voru fastar á vellinum, gátu ekki farið í æfingarflug, ekki yfirgefið völlinn til að fara annað," segir Kári Kárason, skólastjóri Flugakademíu Keilis. Þetta er í þriðja skipti á fjórum vikum sem þetta gerist að sögn Kára og er það mikið högg fyrir rekstur skólans. „Tapið fyrir okkur er komið vel á aðra milljón króna. Til að setja þetta í samhengi við rekstur hjá flugfélögum, þó svo að þau hafi ekki orðið fyrir skerðingu í þessu tilfelli, þá myndi þetta þýða sambærilegt tap fyrir Icelandair uppá 750 milljónir króna á einum degi." Samkvæmt upplýsingum frá Isavia er þjónusta flugumferðarstjóra fjármögnuð með notendagjöldum en kennslu og æfingaflug er undanþegið slíkum gjöldum. Þar af leiðandi er það flug fellt niður þegar upp kemur mannekla eins og í gær en ekki kallaður út auka mannskapur til þess að sinna æfingarflugi á kostnað greiðandi aðila. „Ég skil að það sé svo en ég held að það eigi ekki að mismuna fólki eftir hversu há gjöld þeir greiða því þá myndu menn bara leyfa stærstu flugvélunum að lenda en ekki hinum af því þeir borguðu minna." Flugakademía Keilis stendur að undirbúningsnámi í flugumferðarstjórn en samkvæmt tölum frá Isavia hafa alls 82 lokið grunnámi í flugumferðarstjórn hjá Keili og Flugskóla Íslands hér á landi frá árinu 2009 en einungis 27 verið teknir í framhaldsnám hjá Isavia.
Mest lesið Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Ákæru fyrir manndráp vísað frá Erlent Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Fleiri fréttir „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Sjá meira