Spánverjar unnu Heims- og Evrópumeistara Frakka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2012 18:51 Mynd/AFP
Spánverjar byrja Evrópumótið í Serbíu frábærlega en Spánn vann þriggja marka sigur á Heims- og Evrópumeisturum Frakka, 29-26, í fyrsta leik liðanna á EM. Liðin eru í C-riðli keppninnar en liðin sem komast upp úr þeim riðli verða í milliriðli með liðunum úr riðli Íslands. Alberto Entrerrios, Cristian Ugalde og Joan Canellas skoruðu allir fjögur mörk fyrir Spánverja en Jérôme Fernandez var markahæstur hjá Frökkum með 7 mörk. Thierry Omeyer varð aðeins 3 skot í marki Frakka og munaði um minna. Spánverjar voru sterkari frá upphafi leiks, komust í 6-3, 8-5 og náðu mest fjögurra marka forskoti, 12-8, þegar tæpar níu mínútur voru til hálfleiks. Frakkar minnkuðu muninn í tvö mörk fyrir hálfleik, 13-15 og skoruðu síðan fyrsta mark seinni hálfleiksins. Spánverjar gáfu ekkert eftir, svöruðu með því að skora 5 af næstu 6 mörkum og komast fimm mörkum yfir, 20-15. Frakkar svöruðu með þremur mörkum í röð og minnkuðu muninn í tvö mörk. Spánverjar náðu hinsvegar aftur fjögurra marka forskoti en önnur þrjú frönsku mörk í röð komu muninum niður í eitt mark, 27-26, þegar ein og hálf mínúta var eftir. Spánverjar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins og fögnuðu sigrinum gríðarlega í leikslok.
Mest lesið Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Fótbolti Keflavík sækir liðsstyrk Körfubolti Fá góðar móttökur í Dallas Sport Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Fótbolti Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Fótbolti Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Fótbolti Hermann látinn taka pokann sinn Fótbolti Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Enski boltinn Húðskammaður af forseta landsins og „blurraður“ í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira