Fella út veigamikil atriði í fiskveiðistjórnunarfrumvarpi 14. september 2012 08:00 Verði fallið frá tillögum um 40/60 reglu og 3 prósenta klípu vilja stjórnarliðar hækka hlutfall aflaheimilda sem í upphafi fer í leigupotta. fréttablaðið/stefán
Trúnaðarmannahópur fulltrúa stjórnmálaflokkanna leggur til að 40/60 reglan svokallaða og 3 prósenta klípan verði ekki í frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða. Með því er frumvarpi Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvegaráðherra breytt á veigamikinn hátt. Samkvæmt 40/60 reglunni áttu 40 prósent af aflamarki umfram ákveðin mörk að renna í leigupotta, en 60 prósent til útgerðarinnar. Mörkin sem kveðið var á um voru 202 þúsund tonn af þorski, 66 þúsund af ýsu, 50 þúsund af ufsa og 14 þúsund tonn af steinbít. Í greinargerð trúnaðarmannahópsins segir að sérfræðingar hafi talið að frumvarpsgreinin fæli í sér skerðingu á aflahlutdeild handhafa þeirra. Hafrannsóknastofnun hefur sagt að árið 2016 kynni aflamark þorsks að verða komið í 300 þúsund tonn. Sé reglan inni í frumvarpinu þýðir það að 40 prósent af öllu umfram 202 þúsund tonn renni til ríkisins. Frumvarpið gerði ráð fyrir því að þegar fiskiskip eða aflahlutdeildir skiptu um hendur yrði aflahlutdeild viðkomandi skips skert um 3 prósent og þeim ráðstafað varanlega í leigupotta. Þetta hefur verið nefnt 3 prósenta klípan. Í greinargerðinni segir að gagnrýnt hafi verið að slíkt mundi draga úr umfangi ábatasamra viðskipta og hægja á hagræðingu. Þá sé hugtakanotkun óljós þegar kemur að flutningi og aðilaskiptum. „Að mati hópsins ber að virða þau varnaðarorð sem komið hafa fram vegna mögulegra áhrifa klípunnar,“ segir í greinargerðinni. „Þá telur hópurinn að taka verði til endurskoðunar þau markmið sem liggja að baki ákvæðinu og stefna jafnframt að því að ganga eins skammt og hægt er í að setja hömlur á viðskipti með aflahlutdeild.“ Björn Valur Gíslason, VG, og Kristján L. Möller í Samfylkingu sátu í hópnum. Þeir gera athugasemdir við þessi tvö atriði og telja að tryggja verði að markmið þeirra náist með öðrum hætti. Björn Valur segir að það megi gera með stærri hluta í leigupottum. „Það verði þá fest í hlutdeild í upphafi sem þýði að það verði alltaf sama prósentutalan af aflaheimildum hvers árs sem fer í leigupotta. Það stækki og minnki eftir því hvernig heimildir aukist eða minnki í heildina.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira