Boða til tunnumótmæla á miðvikudaginn 10. september 2012 15:19 Frá mótmælum fyrir utan Alþingi árið 2010.
Boðað hefur verið til tunnumótmæla þegar stjórnmálaflokkar halda stefnuræður á Alþingi næstkomandi miðvikudag. Í tilkynningu frá hópi sem kallar sig Tunnurnar er almenningur hvattur til þess að mæta fyrir utan Alþingi klukkan hálf átta en stefnuræður flokkanna hefjast 19:50. Tunnur verða á staðnum en almenningur er hvattur til þess að mæta með hávaðatól eins og trommur, lúðra, dómaraflautur, brunaboða o.fl. Í tilkynningunni segir að mótmælin séu áminning til þingmanna hvernig heimili í landinu hafi stöðugt verið látin sitja á hakanum, eins og það er orðað. „Tunnunum svíður fyrir hönd heimilanna og almennings sem hefur þurft að bera afleiðingar efnahagshrunsins sem varð hér haustið 2008 af fullum þunga á meðan gerendum þess hefur verið hossað," segir svo orðrétt í tilkynningunni. Svo segir í tilkynningunni: „Tunnurnar vilja tryggja það að hvorki forsætisráðherra né aðrir sem taka til máls þetta kvöld geti hælt sér af afrekum sínum fyrir heimilin með vísun til þagnarinnar á Austurvelli. Þvert á móti viljum við að hávaðinn úti fyrir minni alþingismenn á síversnandi afkomu heimilanna og lakari lífskjör almennings í landinu. Þess vegna hvetjum við alla til að mæta niður á Austurvöll með kröfuspjöld og öfluga hljóðgjafa og krefjast þess að staðið verði við kosningaloforðin sem snúa að heimilunum án tafar!"
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Öll hin látnu um og undir tvítugt Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Fleiri fréttir Öll hin látnu um og undir tvítugt „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Sjá meira