Karabatic hefur hug á að spila með landsliði Svartfjallalands Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. nóvember 2012 15:45 Karabatic hefur farið fyrir sigursælu liði Frakka undanfarin ár. Hann er 28 ára gamall. Nordicphotos/AFP
Nikola Karabatic, einn besti handboltamaður heims, hefur hug á því að spila með landsliði Svartfjallalands. Þetta kom fram í þarlendum fjölmiðlum í gær. „Þvílíkar fréttir! Kannski þær bestu síðan Svartfjallaland fékk sjálfstæði sitt. Nikola Karabatic vill spila fyrir landslið okkar. Umboðsmaður handboltatöframannsins hefur þegar sett sig í samband við handknattleikssambandið," segir í miðlinum Dnevne Novine. Karabatic hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur en hann er ásamt fleiri leikmönnum Montpellier sakaður um hlut í veðmálahneyksli. Óvíst er um framtíð kappans en hann hefur þurft að fylgjast með liði sínu og landsliði af hliðarlínunni síðan málið komst í fréttirnar. Karabatic yrði ekki fyrsti landsliðsmaðurinn til þess að spila fyrir tvö landslið. Má nefna Sergej Rutenka (Hvíta-Rússland og Slóvenía), Talant Duyshebaev (Spánn og Rússland) að ógleymdum Róbert Julian Duranona (Kúba og Ísland) sem dæmi um leikmenn sem staðið hafa vaktina fyrir landslið tveggja þjóða. Reglurnar eru þó þannig að þrjú ár þurfa að líða á milli þess sem leikmenn spila með landsliðum tveggja ólíkra þjóða. Karabatic gæti því í fyrsta lagi spilað með Svartfellingum árið 2015. Predrag Pavicevic, framkvæmdastjóri handknattleikssambands Svartfjallalands, hefur staðfest að áhugi sambandsins á kappanum sé mikill. „Þessar fréttir hafa komið okkur skemmtilega á óvart. Auðvitað erum við upp með okkur að hann velti fyrir sér að spila með landsliði okkar. Það er engu að síður of snemmt að fullyrða nokkuð í þessum efnum," sagði Pavicevic. Karabatic er fæddur í Nis í suður Serbíu. Móðir hans er serbnesk en faðir hans króatískur. Amma kappans er hins vegar frá Svartfjallalandi.
Handbolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira