Uppgjörið: Valur - KA 36-31 | Valur náði fljótt forystu sem hann lét aldrei af hendi Hjörvar Ólafsson skrifar 14. febrúar 2026 16:36 Gunnar Róbertsson bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn vallarins í dag. Vísir/Pawel Valur bar sigurorð af KA, 36-31, þegar liðin leiddu saman hesta sína í N1-höllina að Hlíðarenda í 18. umferð Olís-deildar karla í handbolta i dag. Valur komst yfir strax í upphafi leiks og jók forskot sitt hægt, rólega og stöðugt í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var síðan 16-12 Valsmönnum í vil sem höfðu góð tök á þessum leik frá upphafi til enda. Arnór Snær Óskarsson skoraði sjö mörk í leiknum. Vísir/Pawel Leikmenn Vals héldu áfram að auka við forystu sína í seinni hálfleik og um miðjan seinni hállfeikinn var staðan 27-20 fyrir Val. KA-menn náðu að narta í hæla Vals og minnkuðu muninn í þrjú mörk, 28-25, þegar Arnór Ísak Haddsson skoraði rúmum tíu mínútum fyrir leikslok. Þá fundu Valsmenn fjölina á nýjan leik og heimamenn sigldu að lokum sannfærandi fimm marka sigri í höfn. Lokatölur í leiknum urðu 36-31 en þessi sigur Valsliðsins fleytir liðinu á topp deildarinnar. Bjarni í Selvindi skilaði sex mörkum á töfluna. Vísir/Pawel Valur hefur 28 stig á toppnum en Haukar eru í öðru sæti með 26 stig og FH kemur þar á eftir með sín 25 stig. ÍBV og Aftureldinga hafa svo 23 stig hvort lið í fjórða til fimmta sæti. KA situr svo í sjötta sætinu með 22 stig. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, ræðir við lærisveina sína. Visir/Pawel Ágúst Þór: Orkustigið var gott allan leikinn „Ég var sáttur við það hvernig við nálguðumst þetta verkefni. Við mættum af gríðarlegum krafti inn í þennan leik og náðum fljótlega undirtökunum. Við spiluðum góða vörn heilt yfir í leiknum og fengum fáar brottvísanir sem er mikilvægt þegar þú er að spila við KA þar sem þeir eru mjög góðir í yfirtölu,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, léttur líkt og hans er von og vísa að leik loknum. „Það lögðu margir leikmenn eitthvað í púkkinn og orkustigið í liðinu var einkar gott og það skilaði þessum sigri. Við erum að spila án Magnúsar Óla, Dags Árna og Agnars Smár og ungir leikmenn eins og Gunnar Róbertsson og Dagur Leó eru að taka við keflinu og axla ábyrgð sem er afar jákvætt,,“ sagði Ágúst Þór enn fremur. „Liðið er á góðum stað og það hefur verið góður stígandi í spilamennskunni eftir slaka frammistöðu á móti Haukum í fyrsta leiknum eftir landsleikjahléið. Við vorum flatir í þeim leik en höfum stigið upp eftir það og ég er ánægður með stöðuna,“ sagði hann. „Við þurfum hins vegar að halda vel á spilunum og nú er bara að endurheimta eftir þennan bardaga og búa okkur vel undir næsta leik. Það er alltaf eitthvað sem er hægt að bæta og við stefnum að því að bæta okkur leik frá leik,“ sagði Ágúst um framhaldið. Andri Snær: Varnaleikurinn ekki nógu öflugur framan af leik „Varnarleikurinn var ekki nógu góður í fyrri hálfleik og af þeim sökum grófum við okkur ofan í holu sem er erfitt gegn jafn sterku liði og Valur hefur á að skipa. Það vantaði upp á grimmd og við náðum ekki loka þeim glufum sem við ætluðum og það er svekkjandi,“ sagði Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, eftir leik. „Varnarleikirinn var þéttari í seinni hálfleik og við náðum að koma okkur inn í leikinn. Því miður náðum við ekki að snúa taflinu okkur í vil en það bara áfram gakk eftir þetta tap,“ sagði Andri Snær þar að auki. „Til þess að bæta gráu ofan á svart missum við Morten Linder. Mig grunar að hann hafi farið úr axlarlið og það er vont ef að við missum hann út í næstu leikjum okkar,“ sagði hann. „Nú er bara að koma okkur upp á hestinn aftur. Það eru spennandi verkefni fram undan bæði í deild og bikar og við hlökkum til þeirra. Við höfum verið að spila vel eftir áramót og erum með hörkulið sem getur gert skemmtilega hlut það sem eftir lifir tímabils,“ sagði Andri um komandi tíma hjá norðanmönnum. Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, hefði viljað sjá sterkari varnarleik í fyrri hálfleik. Vísir/Pawel Atvik leiksins Dagur Leó Fannarsson átti að mínu mati huggulegustu tilþrifin þegar hann átti fast og hnitmiðað undirhandarskot ala Snorri Steinn Guðjónsson sem söng í samsktutunum. Þetta var eitt af fjórum mörkum Dags Leós í leiknum en hann átti fínan leik. Stjörnur og skúrkar Gunnar Róbertsson var í feiknastuði í þessum leik en hann var markahæstur á vellinum með 10 mörk. Þegar Gunnar var hvíldur um miðjan seinni hálfleik náðu KA-menn að velgja Val aðeins undir uggum en þegar hann snéri aftur inn á völlinn komst meira flot á sóknarleikinn. Bjarni Ófeigur Valdimarsson setti fjögur mörk. Vísir/Pawel Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir, Ómar Ingi Sverrisson og Svavar Ólafur Pétursson, tóku þennan leik traustum tökum og dæmdu þennan leik af stakri prýði. Frammistaða þeirra skilar þeim átta í einkunn. Þeir héldu ró þó svo að leikemnn og forráðamenn liðanna væru að kvarta og kveina í þeim. Samskiptin voru stóísk og róleg og engar ákvarðanir sem orkuðu það mikið tvímælis að hægt væri að gagnýna þá hraustlega með góðum rökum. Stemming og umgjörð Það var margt um manninn á Hlíðarenda á dag og bæði fjölmennt og góðmenn. Létt var yfir mannskapnum og trommusveit Valsmanna hélt uppi stuðinu. Umgjörðin með fínasta móti hjá Val líkt og alla jafna. Björgvin Páll Gústavsson varði 10 skot að þessu sinni og skoraði eitt mark. Vísir/Pawel Ágúst Elí Björgvinsson varði sex skot líkt og kollegi hans, Bruno Bernat. Ágúst Elí varði tvö vítaköst. Vísir/Pawel Olís-deild karla Valur KA