Innlent

Enginn missir bílpróf fyrir að hjóla fullur

BBI skrifar
Hjólreiðamenn geta fengið sektir fyrir að brjóta umferðarlög. Þeir geta aftur á móti ekki fengið refsipunkta í ökuferilskrá eða misst ökuleyfið fyrir það. Þetta segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi hjá Umferðarstofu.

Menn fá því 5 þúsund króna sekt fyrir að hjóla fullir. Þeir missa hins vegar ekki bílprófið segir Einar og telur almennan misskilning ríkjandi um þessi mál.

„Sömuleiðis fær sá sem hjólar yfir á rauðu ljósi 15 þúsund króna sekt fyrir," segir Einar. „Hann fær hins vegar ekki tvo punkta í ökuferilskrá eins og hann hefði fengið ef hann hefði verið á bíl."

Umferðarlagabrot á hjóli hafa þess vegna ekki áhrif á ökuréttindi enda þarf maður ekki að hafa ökuréttindi til að ferðast um á reiðhjóli. Hjólreiðamenn geta því bara fengið sektir fyrir brot. Einari finnst viðurlög af þessum toga engan vegin endurspegla alvarleika þess að brjóta umferðarlög á hjóli, enda eru hjólreiðamenn fullgildir þátttakendur í umferðinni og geta hæglega valdið mikilli hættu með óábyrgri hegðun.

Um þetta var fjallað í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. Þar kom einnig fram að gangandi vegfarendur fá engar sektir fyrir umferðarlagabrot. Þó það sé bannað að ganga yfir á rauðu ljósi eru engin viðurlög við brotinu. Umferðarstofa vill beita sér fyrir því að sektir verði teknar upp við brotum gangandi vegfarenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×