Tófan bar sigur úr býtum 24. desember 2012 06:00 Júlíus Valsson segir það heilmikla hvatningu og lyftistöng að hafa sigrað í keppninni. Hann hyggur á útgáfu smásagnasafns í vor. Fréttablaðið/Stefán
Smásagan Tófan eftir Júlíus Valsson lækni bar sigur úr býtum í jólasögusamkeppni Fréttablaðsins sem efnt var til í fyrsta sinn í ár. Yfir 250 sögur bárust í keppnina og hafði dómnefnd því úr nógu að moða. Þrjár sögur voru að endingu fyrir valinu. Í þriðja sæti var sagan Hvít jól eftir Sif Sigmarsdóttur, í öðru sæti sagan Fjárhúsin eftir Steinunni Guðmundsdóttur og sem fyrr segir var sagan Tófan eftir Júlíus Valsson í fyrsta sæti. Júlíus er læknir en hefur fengist við ritstörf um langt skeið. Hann á meðal annars sögu í smásagnasafni sem kom út á rafbók á vegum Rithrings.is á dögunum ætlar að gefa út eigið smásagnakver í vor. Tófuna samdi Júlíus sérstaklega fyrir keppnina en segir hugmyndina að baki henni hafa blundað með sér um skeið. „Ég er sjálfur veiðimaður og persónurnar eru gamlir kunningjar ef svo má segja.“ Hann segir það sér mikils virði að hafa sigrað í keppninni. „Þetta er heilmikil hvatning og lyftistöng.“ Júlíus fékk í verðlaun Intel Pentium-fartölvu frá Toshiba, en Steinunn og Sif fengu spjaldtölvur af gerðinni United í boði Tölvulistans. Í dómnefnd sátu Steinunn Stefánsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Arndís Þórarinsdóttir. Um söguna sem hreppti hnossið segja þau. „Tófan er haganlega skrifuð saga. Hún kannski ekki hefðbundin jólasaga, í það minnsta framan, af en boðskapur hennar er sígildur.“ - bs/ Jólasagan Tófan er á síðu 18.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira