Ekkert hús heilt eftir fellibylinn 22. desember 2012 08:00 Hrunin Ekkert hús stendur eftir í þeim bæjum sem verst urðu úti í fellibylnum sem gekk yfir 4. desember. Nordicphotos/AFP „
Ástandið er verst á austurströndinni. Hér eru þrír bæir og í þeim sem fór verst er ekkert heilt hús eftir,“ segir Lárus Steindór Björnsson, íslenskur björgunarsveitarmaður, sem hefur verið við störf á skaðasvæðum fellibyljarins Bopha á Filippseyjum undanfarna daga. „Þau hús sem enn eru uppistandandi eru ýmist þaklaus eða hálfhrunin og ástandið mjög slæmt. Hjálparstofnanir horfa fram á að þurfa að vera hér í tvö ár til að aðstoða við uppbyggingu,“ segir Lárus. Fellibylurinn gekk yfir Filippseyjar 4. desember síðastliðinn. Hann kom til eyjarinnar Mindanao eftir þriggja daga ferðalag síðastliðinn sunnudag, og hefur unnið að því að koma fjarskiptamálum í lag á svæðinu. Alls er nú talið að um 1.000 hafi farist í fellibylnum, þar af um 900 á austari hluta eyjarinnar Mindanao. „Mitt verkefni er að samræma fjarskipti milli hjálparsamtaka svo menn geti skipst á upplýsingum,“ segir Lárus. Allt samband við bæina á austurströndinni rofnaði í óveðrinu, og þó GSM-sambandi hafi verið komið á er enn ekkert netsamband. „Það tefur alla aðstoð ef menn fá ekki upplýsingar um hvað vantar, og alla framvindu. Það skiptir gríðarlega miklu að koma þessum málum í lag til að það sé hægt að koma lífinu hjá fólkinu hér í samt lag aftur.“ Lárus leggur af stað heim í dag og reiknar með að lenda á Íslandi á Þorláksmessu.- bj
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira