Ísland verður í flokki með Sýrlandi 20. desember 2012 06:00 Gylfi Sigfússon
Forsvarsmenn Eimskips hafa sent Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra bréf og farið fram á skýringar og viðbrögð við kröfum Bandaríkjamanna um hertar aðgerðir gegn laumufarþegum á Íslandi. Þetta segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips. Hann telur Eimskip uppfylla allar öryggiskröfur og gott betur. „Eimskip er að ósekju að dragast inn í deilu sem snýst um málefni hælisleitenda og úrræðaleysis yfirvalda í þeim málaflokki,“ segir hann. Fréttablaðið greindi frá því í gær að sendinefnd frá bandaríska heimavarnarráðuneytinu hefði komið hingað til landsins fyrir nokkrum vikum og gert talsverðar athugasemdir við að sami, smái hópur kæmist ítrekað upp með að lauma sér um borð í skip sem væru á leið til Bandaríkjanna. Þá var greint frá því að bréf hefði verið sent hingað að utan í kjölfar heimsóknarinnar þar sem óánægju var lýst með viðbrögð Íslendinga. Yrði ekki farið að kröfunum gæti Ísland verið fært niður um öryggisflokk sem mundi kalla á mun ítarlegri og tímafrekari skoðanir íslenskra skipa sem leggja að höfn í Bandaríkjunum. „Ef af því verður er Ísland í flokki með löndum eins og Sýrlandi þar sem stríðsástand ríkir. Það má ekki gerast þar sem það skaðar samgöngur til og frá landinu,“ segir Gylfi. - sh
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Sjá meira