Nova nánast jafn stórt og Vodafone 13. nóvember 2012 08:00 Um áramót verða öll lúkningargjöld samræmd og þá munu símafyrirtækin keppa á jafnræðisgrundvelli um viðskiptavini. Nordicphotos/AFP
Allir viðskiptavinir sem bættust við íslenska farsímamarkaðinn á fyrri hluta árs fóru til Nova. Markaðshlutdeild Nova og Vodafone verður jöfn um áramót. Síminn bætir við sig í fyrsta sinn í mörg ár. Nova var með 6.416 færri viðskiptavini í farsímaþjónustu en Vodafone um mitt þetta ár. Á fyrri helmingi þessa árs bætti Nova við sig 7.229 viðskiptavinum en á sama tíma fjölgaði þeim um 257 hjá Vodafone. Haldi þessi þróun áfram á síðari hluta ársins 2012 verður Nova orðið næststærsta farsímafyrirtæki landsins í árslok á eftir Símanum. Þetta kemur fram í nýrri tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunnar (PFS) um íslenska fjarskiptamarkaðinn á fyrri helmingi ársins 2012 sem birt var í gær. Alls bættust 7.046 áskriftir við íslenska farsímamarkaðinn á síðasta ári. Ljóst er að Nova tók alla þá viðskiptavini til sín. Til viðbótar tapaði Tal rúmlega þúsund viðskiptavinum sem skiptast nokkuð bróðurlega á milli annarra símafyrirtækja. Viðskiptavinir Nova, sem hóf starfsemi 1. desember 2007, voru orðnir tæplega 107 þúsund í lok júní síðastliðins. Það er í fyrsta sinn sem þeir fara yfir 100 þúsund viðskiptavinamarkið í samantekt PFS. Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, segir allt stefna í að Nova verði orðið jafn stórt og Vodafone í lok þessa árs. "Það er rétt rúmur mánuður eftir af árinu og ég sé ekki annað en að það stefni í það. Ég myndi áætla að markaðshlutdeild félaganna tveggja verði sambærileg í lok þessa árs. Við verðum fimm ára 1. desember næstkomandi og þessi þróun er í takt við það sem við létum okkur dreyma um þegar við lögðum af stað í þessa miklu fjárfestingu."Síminn bætti loks við sig Síminn, stærsta farsímafyrirtæki landsins, bætir við sig viðskiptavinum í fyrsta sinn síðan PFS fór að birta tölfræðiupplýsingar um fjarskiptamarkaðinn opinberlega. Þeim fjölgaði um 230 á fyrstu sex mánuðum þessa árs og voru 153.421 talsins. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, segir árangurinn vera í takt við áherslur fyrirtækisins á undanförnum árum. "Við höfum verið að leggja áherslu á að efla okkar þjónustu til okkar núverandi viðskiptavina. Það er greinilegt á þessu að sú vinna er að skila sér." Markaðshlutdeild Símans hefur þó lækkað jafnt og þétt á undanförnum árum. Árið 2004 var fyrirtækið með 64,5 prósenta markaðshlutdeild og rúmlega 173 þúsund viðskiptavini. Þeim hefur fækkað um 20 þúsund síðan þá auk þess sem Símanum hefur ekki tekist að ná í þá 124 þúsund viðskiptavini sem bæst hafa við markaðinn síðan þá. Hlutdeild Vodafone á farsímamarkaði er nú tæplega 29 prósent og hefur aldrei verið lægri. Viðskiptavinum fyrirtækisins fjölgaði lítillega á fyrri helmingi þessa árs en ekki nóg til að verja markaðshlutdeildina. Vodafone, sem verður skráð á markað á þessu ári, skilaði níu mánaða uppgjöri sínu í gær. Það sýndi hagnað fyrir skatta og fjármagnsliði (EBITDA) upp á 2,2 milljarða króna og hreinan hagnað upp á 352 milljónir króna.Fjölga tekjustraumunum Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, segist ánægður með að viðskiptavinum fyrirtækisins hafi fjölgað. "Við höfum á undanförnum árum lagt áherslu á að styrkja stoðirnar undir rekstrinum og fjölga tekjustraumunum. Það höfum við gert með því að bjóða heildarfjarskiptaþjónustu með góðum árangri, en vöxturinn hefur verið mestur í gagnaflutnings- og sjónvarpsþjónustu. Við einblínum ekki á fjöldatölur heldur horfum á rekstrarniðurstöður félagsins í heild og mikilvægi þess að rekstrarmódelið okkar sé sjálfbært á hverjum tíma. Afkoma Vodafone á fyrstu níu mánuðum ársins gefur okkur fulla ástæðu til bjartsýni og við höldum ró okkar þótt hlutdeildin á farsímamarkaðnum hafi lækkað um hálft prósent á þessu ári." Tal náði að fjölga viðskiptavinum sínum um rúmlega eitt þúsund á seinni hluta ársins 2011 en tapaði þeim aftur á fyrri hluta þessa árs. Fjöldi viðskiptavina er nánast sá sami og hann var um mitt síðasta ár og markaðshlutdeild fyrirtækisins 4,6 prósent. Viktor Ólason, forstjóri Tals, segir fyrirtækið hafa bætt verulega við sig síðan um mitt ár. Viðskiptavinum þess hafi fjölgað um fjögur þúsund á síðustu mánuðum.
Mest lesið Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi Innlent „Þetta er vondur klukkutími hér í þessum þingsal“ Innlent „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ Innlent Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Erlent Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Innlent Telur að Ólafur Þór og Sigríður hljóti að víkja við rannsókn málsins Innlent Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð Innlent Kristrún ræddi við Trump og Selenskíj á fundi JEF-ríkja Innlent Þingmenn slá Íslandsmet Innlent Fleiri fréttir „Enn sem er komið er er staðan óbreytt og orð Sönnu ósönn“ Munu geta aðgreint fanga eftir alvarleika brota í nýju fangelsi Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Ólafur Þór segir ekki tilefni til afsagnar Túnin aftur rennandi blaut en spáð hlýindum í næstu viku Framkvæmdir á hólmanum í fullum gangi Þingmenn slá Íslandsmet Krefst svara frá MAST vegna eftirlits með blóðmerum Kristrún ræddi við Trump og Selenskíj á fundi JEF-ríkja Jákvæður tónn í Norðurþingi um samstarf við Carbfix Íslandsmet á Alþingi og saksóknarar gagnrýndir Telur að Ólafur Þór og Sigríður hljóti að víkja við rannsókn málsins „Þetta er vondur klukkutími hér í þessum þingsal“ Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi Skipulögð brotastarfsemi er komin til að vera Skilríkjalaus og með fíkniefni „Hún er albesti vinur minn“ Loftslagsmál sitji á hakanum vegna stríða og heimsfaraldurs „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Einn rólegur, annar afar ósáttur Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð „Gott að eldast“ í tuttugu og tveimur sveitarfélögum Uppsagnir á Þjóðminjasafninu Lítil Björg dró stóra Hildi í land Nýr páfi, svik við almenning og loðnasti starfsmaður Rimaskóla Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Þungt hugsi og í áfalli Telja Jón Þór hafa tryllst af afbrýðissemi Sjá meira
Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent
Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Innlent