Innlent

Bótatímabil sé lengt og lausn fundin

Rannveig Ásgeirsdóttir Fólk þarf að að vinna saman til að leysa málefni langtímaatvinnulausra, segir formaður bæjarráðs Kópavogs.
Fréttablaðið/Vilhelm
Rannveig Ásgeirsdóttir Fólk þarf að að vinna saman til að leysa málefni langtímaatvinnulausra, segir formaður bæjarráðs Kópavogs. Fréttablaðið/Vilhelm
„Þetta er að verða algjör þvæla," segir Rannveig Ásgeirsdóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, um stöðuna á málefnum þeirra sem glíma við langtímaatvinnuleysi.

Um áramótin stefnir í að stór hópur atvinnulausra missi réttinn til atvinnuleysisbóta og fari þá á framfærslustyrk hjá sveitarfélögunum með tilheyrandi útgjöldum fyrir þau. Rannveig gagnrýnir framgöngu ríkisvaldsins í málinu.

„Við vorum kölluð með dags fyrirvara á fund um síðustu mánaðamót hjá velferðarráðuneytinu. Við héldum að þarna væru að koma fram einhverjar verulegar ákvarðanir en fundurinn var þá aðeins til að segja okkur að það væri búið að ákveða að framlengja ekki bótatímabilið hjá þessum hópi. Sveitarfélögin þyrftu að vinna hratt og komast að niðurstöðu um það hvernig þau ætluðu að bregðast við fyrir lok þessa mánaðar," segir Rannveig.

Að sögn Rannveigar er óljóst hvaða fjármagn muni fylgja frá ríkinu vegna yfirfærslu fyrrgreinds hóps frá og með áramótum.

„Menn voru að hugsa um að slökkva elda þegar var að brenna en hafa síðan ekki verið að nýta tímann til að finna heildarlausnir. Það er engin hugmyndaauðgi," segir bæjarráðsformaðurinn.

Aðspurð kveður Rannveig lækkun tryggingargjalds og fjölgun starfa hluta þeirra lausna sem horfa eigi til. „Það þarf að fá lengingu á bótatímabilinu og aðilar að skuldbinda sig til að fara í þá vinnu sem þarf til að finna lausnir. Þetta er samfélagslegt verkefni sem við þurfum að leysa saman. Við þurfum hvert á öðru að halda." - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×