Innlent

Sjúkir án þess að vita það

Talið er að stór hluti þeirra sem hafa langvinna lungnateppu (LLT), jafnvel þeir sem hafa langt genginn sjúkdóm, hafi ekki verið greindir og hafi þar af leiðandi ekki fengið neina meðhöndlun. Sjúkdómurinn er engu að síður talinn verða þriðja algengasta dánarorsökin á Íslandi árið 2020 og ein algengasta orsök örorku.

Dóra Lúðvíksdóttir, lungnasérfræðingur á Landspítalanum, segir líklegt að um eða yfir tuttugu þúsund Íslendingar þjáist af LLT. „Hversu margir gera sér grein fyrir því að þeir ganga með þennan hættulega sjúkdóm er hins vegar annað mál. Vandinn liggur í því hversu lúmsk LLT er, og fer stigversnandi með árunum ef ekkert er að gert. Það verður að segjast að við Íslendingar höfum ekki gert okkur grein fyrir því hversu stórt vandamál þetta er og kemur til með að vera á næstu árum."

LLT er samheiti yfir langvinna berkjubólgu og lungnaþembu. Þetta eru sjúkdómar sem nær eingöngu miðaldra og eldra fólk þjáist af. Flestir hafa reykt lengi, en þó má í einstaka tilfellum rekja orsakir til atvinnu, mengunar og erfða. LLT er ólæknandi sjúkdómur en margt er hægt að gera til að bæta lífsgæði þeirra sem búa við sjúkdóminn.

Tíðni sjúkdómsins fer vaxandi á Íslandi, sem og annars staðar í heiminum. Er það fyrst og síðast vegna þess að fjölmennir árgangar, sem gjarnan reyktu, eru komnir yfir miðjan aldur. „Þetta mun versna áður en þetta batnar aftur," segir Dóra.

Niðurstöður rannsóknar sem gerð var hér á landi árið 2007 sýndi að af 755 þátttakendum reyndust 27% vera með LLT á mismunandi stigum sjúkdómsins. Stór hluti þess hóps var grunlaus um ástand sitt.

Lungnalyf vega sífellt meira í heildarlyfjakostnaði heilbrigðiskerfisins á Íslandi en til að berjast við LLT þarf daglega notkun dýrra lyfja í langan tíma, jafnvel árum saman. „Eins ber samfélagið mikinn kostnað af öllu því fólki sem fer á örorkubætur langt fyrir aldur fram vegna þessa sjúkdóms," segir Dóra.

Dóra hvetur alla sem finna fyrir einkennum frá öndunarfærum til að fara í öndunarmælingu á sinni heilsugæslustöð, hafi þeir ekki þegar fengið greiningu. „Eins á þetta við um alla sem reykja eða hafa reykt. Þeir þurfa að vita hver staðan er."- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×