Gamall gærukollur í tísku í útlöndum 4. júlí 2012 04:30 Hér er Sigurður Már með gærukollinn sem víðast er nú meira fyrir augað en sitjandann. fréttablaðið/stefán
Gærukollur sem hannaður var fyrir fjörutíu og tveimur árum eykur nú hróður íslenskrar hönnunar víða um heim. Víða er bannað að sitja á kollinum. Menningarmiðstöðin The American Scandinavian Foundation í New York keypti í síðustu viku koll eftir Sigurð Má Helgason. Kollurinn ber heitið Fuzzy eða Loðlingur og var hannaður árið 1970 af Sigurði og þótti þá um margt nýstárlegur en ber nú hróður íslenskrar hönnunar víða um heim. Loðlingur komst til að mynda í sviðsljósið í maí síðastliðnum en Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar forseta, kynnti hann þegar hún var gestur í matreiðsluþætti Mörthu Stewart. En kollurinn skýtur víðar upp kollinum. „Ég hef nú ekki verið nógu duglegur við að halda nöfnunum á þessum stöðum til haga,“ segir Sigurður Már. „En hann er á einhverju safni í Finnlandi, nú og svo bæði í Svíþjóð og Danmörku. Síðan hef ég líka selt Japana fimm stykki. Það eru eflaust ekki mörg íslensk húsgögn sem fara alla leið þangað.“ Þó gærukollurinn hafið verið lengi að ná þessum hæðum komst hann þó í tísku hér á landi fljótlega eftir að hann var hannaður. „Hann varð fljótlega vinsæll til fermingargjafa. Það eru enn að koma til mín konur sem fengu hann á sínum tíma í fermingargjöf og eru nú að biðja mig að lappa aðeins upp á hann.“ Sigurður Már segir að í seinni tíð sé orðið erfitt að dæma um hvort hann eigi að flokkast undir húsgagn eða skrautmun. „Ég veit að sums staðar er alveg bannað að sitja á honum. Eins og gefur að skilja er það nú ekki algengt um kolla. Svo veit ég um mann sem tók niður Kínavasann og setti gærukollinn upp á hillu rétt eins og hvern annan skrautmun.“ Sigurður Már hefur einnig hannað lampa sem hann kallar Kraum og eru úr gleri og við. Þó hann sé nú orðinn sjötíu og tveggja ára er hann síður en svo hættur að hanna en hann lætur ekkert hafa eftir sér um það hvers konar furðuverk skjóti upp kollinum næst.jse@frettabladid.is
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Sjá meira