Kauphallarstjóri ánægður með breytt umhverfi 3. júlí 2012 06:30 Fjórar konur skipa fimm manna stjórn Regins. Elín Jónsdóttir, Fjóla Þ. Hreinsdóttir, Guðríður Friðriksdóttir, Hjördís Halldórsdóttir og Stanley Pálsson. Fréttablaðið/valli
Hlutabréf í fasteignafélaginu Regin, sem meðal annars á og rekur Smáralind og Egilshöll, voru tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands í gærmorgun. Gengi bréfa félagsins stóð í stað í 8,2 í lok dags, en heildarvelta viðskipta með bréf í félaginu nam tæplega 40 milljónum á þessum fyrsta viðskiptadegi. Með Regin hafa nú tvö ný félög verið skráð á markað frá hruni, en auk Regins hefur smásölurisinn Hagar, sem á og rekur Bónus og Hagkaup, einnig verið skráður á markað. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands segist ánægður með það umhverfi sem sé að verða til eftir hrunið, þar sem eignarhald á fyrirtækjum sé dreifðara en var fyrir hrun fjármálakerfisins og hlutabréfamarkaðarins, fyrir tæplega fjórum árum, og konur í ríkara mæli við stjórnvölinn, en 35 prósent stjórnarmanna í skráðum félögum á Íslandi eru nú konur. Til samanburðar er meðaltalið um 13 prósent í Evrópu, eins og fram kom í frétt Stöðvar 2 fyrir tveimur vikum. „Þessar breytingar eru mjög til bóta að mínu mati,“ sagði Páll eftir að bjöllunni hafði verið hringt í Kauphöllinni, til marks um að viðskipti með bréf Regins á skráðum markaði væru formlega hafin. Landsbankinn, sem átti Regin að öllu leyti, hefur nú selt tæplega 75 prósent af eign sinni í félaginu, en er þrátt fyrir það stærsti eigandi félagsins með ríflega fjórðungshlut. Meðal annarra stórra eigenda eru Lífeyrissjóður verzlunarmanna með 8,2 prósenta hlut og Gildi lífeyrissjóður með ríflega fjögurra prósenta hlut.- mþl
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Sjá meira