Lið Hemma rassskellti fangana á nýjum velli 6. júní 2012 06:30 Úrvalslið Hemma Gunn gekk vasklega til leiks og sigraði FC Betri, lið fanga á Litla-Hrauni, 12-2 á nýja fótboltavellinum í garði fangelsisins. Mynd/www.dfs.is
Hemmi Gunn stýrði úrvalsliði fótboltamanna til sigurs gegn liði fanga í fyrsta leik á nýjum fótboltavelli við fangelsið á Litla-Hrauni. Nýi völlurinn var vígður við mikla athöfn á mánudag. Þetta var alveg stórkostlegur dagur, segir Hemmi. Nýr gervigrasvöllur var vígður í fangelsisgarðinum við Litla-Hraun á mánudag. Við tilefnið var leikinn fótboltaleikur milli FC Betri, fótboltaliðs fanga, og úrvalsliðs úr fótboltaheiminum. „Ég held að leikurinn hafi farið 12-2 fyrir úrvalsliðið,“ segir Hermann Gunnarsson, útvarpsmaður, sem stýrði úrvalsliðinu. „Þarna var valinn maður í hverju rúmi, Tommy Nielsen, Bjarnólfur Lárusson, Sigurvin Ólafsson, Pétur Marteinsson og fleiri.“ „Þetta var alveg stórkostlegur dagur. Aðstaðan þarna er alveg meiriháttar og ekki veitir af eins og ástandið er þarna núna.“ Gunnar Svavarsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, stóð fyrir fjáröflun og því að völlurinn væri lagður. Evrópska knattspyrnusambandið styrkti Knattspyrnusamband Íslands um þrjár milljónir til kaupa á vellinum. Knattspyrnuvinafélag Litla-Hrauns safnaði sjö milljónum til viðbótar svo hægt væri að kaupa efni í völlinn. Fjölmörg fyrirtæki styrktu söfnunina. „Þetta var mikil viðhöfn. Sóli Hólm og Eyjólfur Kristjánsson komu og skemmtu fyrir leikinn. Svo fengum við Halldór Einarsson í Henson viðurkenningu. Gunnar Svavarsson fékk líka viðurkenningu enda er hann maðurinn sem dreif í þessu,“ segir Hemmi Gunn. Eftir leikinn gæddu fótboltamennirnir sér á grillmat og ís. Hemmi hefur lengi staðið fyrir skemmtunum á Litla-Hrauni og efnt til fótboltaleikja. „Ég og Halldór sátum í stjórn Verndar og sáum ekki ástæðu til annars en að láta gott af okkur leiða. Við byrjuðum því að fara með fótboltalið og skemmtikrafta austur að Litla-Hrauni árið 1984. Þá var bara spilað á grjóthörðum malarvelli og Ómar Ragnarsson og Halli og Laddi skemmtu í kjölfarið.“ Spurður hvort hann hafi ekki tekið þátt í ár og sparkað í knöttinn segist hann bara hafa sparkað boltanum til þeirra í þetta skiptið. „Ég setti bara upp leikskipulag, það fóru allir eftir því og ég var mjög ánægður með það. Ég á örugglega framtíð fyrir mér í þjálfun!“birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira