Aðgerðir LÍÚ ólögleg og ósvífin árás á Alþingi 5. júní 2012 05:00 Jóhanna Sigurðardóttir sagðist efast um að samráð hefði verið haft við sjómenn og fiskverkafólk vegna vinnustöðvunarinnar. Fréttablaðið/GVa „
Þær aðgerðir sem Landssamband íslenskra útvegsmanna er að fara í núna, sem að mínu viti eru ólöglegar, eru ekkert annað en ósvífnar aðgerðir og eiga auðvitað ekki að líðast.“ Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á þingi í gær um þá ákvörðun útgerðarmanna að halda fiskiskipaflota landsins í höfn næstu daga til að mótmæla kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar. Jóhanna sagði aðgerðirnar brjóta gegn lögum um stéttarfélög og vinnudeilur og væru sprottnar af því að útgerðarmenn óttuðust að ná ekki fram öllum sínum ýtrustu kröfum. „Vegna þess að þegar sjálfstæðismenn og framsóknarmenn stjórnuðu þá gátu þeir verið þar inni á teppi og fengið það sem þeir vildu, en þeir fá það ekki hjá þessari ríkisstjórn.“ Hún sagði aðgerðirnar enn fremur fullkomlega óþolandi, ógeðfelldar og kallaði þær ólöglega „árás á Alþingi.“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, varði aðgerðirnar og sagði eðlilegt að útgerðarmenn tækju sér nokkra daga til að ráðfæra sig við starfsfólk sitt um næstu skref. Allt væri þetta gert í samráði við sjómenn. Jóhanna efaðist um að ákveðið hefði verið að ráðast í aðgerðirnar í fullri sátt við sjómenn og landvinnslufólk. „Var leitað samráðs við það um þessa aðgerð? Ég er ansi hrædd um að svo sé ekki,“ sagði Jóhanna. Það væri bjargföst skoðun hennar að um pólitískt verkfall væri að ræða sem ætti ekki heima í lýðræðisþjóðfélagi. - sh
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira