Sjá fyrir sér hagstofu atvinnulífsins 4. júní 2012 05:00 Andri Þór Guðmundsson
Meðal þess sem horft er til með sameiningu hagsmunasamtaka sem starfa fyrir atvinnulífið er að búa til öfluga hagdeild, nokkurs konar hagstofu atvinnulífsins. Samkvæmt heimildum blaðsins er í yfirstandandi viðræðum einna helst horft til þess að sameina með einhverjum hætti starfsemi Samtaka atvinnulífsins (SA) og Viðskiptaráðs Íslands (VÍ). Greint var frá því í blaðinu 10. þessa mánaðar að þreifingar hefðu átt sér stað á vettvangi samtakanna um nánara samstarf. Samanlögð velta hagsmunasamtaka sem starfa fyrir íslenskt atvinnulíf er á bilinu 1,3 til 1,5 milljarðar króna, samkvæmt upplýsingum sem Markaðurinn, viðskiptarit Fréttablaðsins, tók saman. Stærstur hluti tekna samtakanna kemur frá aðildarfyrirtækjum þeirra og flest koma samtökin um það bil út á sléttu í rekstri sínum. Gjöld fyrirtækja til hagsmunasamtaka eru alla jafna reiknuð sem hlutfall af veltu eða launakostnaði og því mjög mismunandi eftir stærð og umfangi fyrirtækjanna. Mjög algengt er hins vegar að fyrirtæki greiði til fleiri en einna hagsmunasamtaka. Dæmi eru um fyrirtæki sem aðild eiga að fjölda samtaka. Til dæmis á Ölgerðin aðild að Viðskiptaráði Íslands, Félagi atvinnurekenda, Samtökum verslunar og þjónustu og Samtökum iðnaðarins sem eru aðildarfélag SA. ?Öll eru þessi samtök samt að einhverju leyti að hjálpa okkur og veita okkur góða þjónustu,? segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. ?En ég er hins vegar mikill talsmaður þess að þessi samtök hagræði og straumlínulagi sína starfsemi. Það er mjög kostnaðarsamt að reka þessi félög öll hvert í sínu lagi og ef við getum ekki tekið til í eigin ranni þá er nú eiginlega fokið í flest skjól,? segir hann, en telur um leið einna mestan ávinning að hafa af því ef samtökin gætu sameinast um sterka hagdeild. ?Að atvinnulífið hefði sína eigin hagstofu,? segir hann. ?Og þar finnst mér í raun komin nægileg ástæða til að halda þessum viðræðum áfram.? Eins segir Andri að fyrirtækjum geti verið nokkur baggi að vera aðili að mörgum hagsmunasamtökum. Árviss kostnaður vegna þessa nemi milljónum hjá fyrirtæki á borð við Ölgerðina. ?En þetta er auðvitað misdýrt. Hjá sumum er fast gjald og stundum er þetta bundið við veltu, þannig að allur gangur er á þessu. En safnast þegar saman kemur. ?olikr@frettabladid.is
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira