Segir lögregluna þurfa að ná falsaranum 2. júní 2012 05:30 Innanríkisráðuneytið tilkynnti í gær að framboð Ástþórs væri ógilt. „
Maður er að melta þetta. Lögreglan þarf að ná í þennan mann og rannsaka hvað er þarna í gangi. Þetta tengist bara þessum eina einstaklingi,“ segir Ástþór Magnússon. Framboð Ástþórs til forseta Íslands var ekki metið gilt þar sem ekki liggur fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftalistum til stuðnings Ástþóri. Innanríkisráðuneytið tilkynnti þetta í gær. Málið snýst um tugi falsaðra undirskrifta í kjördæminu frá einum manni sem var að vinna fyrir Ástþór í kosningabaráttunni. „Ég held að það sé búið að kæra hann og biðja um rannsókn,“ segir Ástþór þegar hann er inntur eftir því hvort hann ætli að kæra málið. Hann segir málið verðfall á lýðræðinu á Íslandi. „Það hefur afhjúpast gat í kosningakerfinu þannig að hvaða fólk sem er getur ráðist á lýðræðisleg framboð,“ segir hann. „Það sem er alvarlegast í þessu er að stjórnsýslan lá lengi á listanum án þess að vinna nokkuð úr þeim.“ Ástþór vill ekki nafngreina manninn sem sá um að falsa undirskriftirnar. „Hann kom bara óumbeðinn og vildi vinna,“ segir hann. „Ég hef ekki hugmynd um hvað býr að baki.“- sv
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira