Brigslin ganga á víxl í bæjarstjórn Kópavogs GAR skrifar 27. nóvember 2012 08:00 Oddviti Samfylkingar gagnrýnir Gunnar fyrir ummæli í bæjarstjórn en hann segir hennar eigið orðbragð vart hafandi eftir. Fréttablaðið/Stefán „
Mér finnst þetta bara hlægilegt,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Kópavogi, um gagnrýni Guðríðar Arnardóttur, oddvita Samfylkingar, á ummæli Gunnars á bæjarstjórnarfundi. Guðríður var fjarverandi á umræddum bæjarstjórnarfundi sem var 13. nóvember en kveðst í bókun sem hún lagði fram á fundi bæjarráðs 22. nóvember hafa hlustað á fundinn í útvarpi. „Þar fóru umræður Gunnars Inga Birgissonar um mig og mína persónu algjörlega fram úr öllum velsæmismörkum. Ég furða mig á því að forseti bæjarstjórnar skyldi ekki hafa vítt bæjarfulltrúann fyrir orðbragð í minn garð og þá sérstaklega þar sem ég var fjarstödd og gat ekki borið hönd fyrir höfuð mér,“ segir í bókun Guðríðar. Á bæjarstjórnarfundinum gagnrýndi meirihlutinn minnihlutann fyrir að tefja ýmis mál með því að hindra að þau fengju endanlega afgreiðslu í bæjarráði þannig að þau þyrftu einnig meðferð í bæjarstjórn. Sagði Gunnar það fara eftir „geðsveiflum“ tiltekins bæjarfulltrúa þann daginn hvort mál færu í gegn. Þar átti hann við Guðríði Arnardóttur. „Þetta lýsir ákveðinni geggjun,“ sagði Gunnar og fulltrúar minnihlutans börðu í borðið. Þess var krafist á fundinum að Gunnar yrði víttur fyrir brigslyrði en ekki var orðið við því. „Það eina sem ég sagði var að þessi framkoma væri geggjun,“ segir Gunnar við Fréttablaðið. „Guðrún er sjálf búin að nota þvílíkt orðbragð gagnvart mér og fleiri einstaklingum í bæjarstjórninni að vart er hafandi eftir, bæði á fundum og í riti. Þessi framkoma er búin að vera alveg frá því hún byrjaði 2006. Enda sást það best á því að hún gat ekki haldið meirihlutanum saman í meira en tuttugu mánuði, þá voru menn búnir að fá nóg af henni.“ Fulltrúar minnihlutans sóttu hart að Gunnari á fundinum 13. nóvember. Var meðal annars haft á orði að hans vitjunartími væri kominn. „Ég held að þið ættuð að fara í innhverfa íhugun hér í minnihlutanum og inni í Samfylkingunni,“ sagði Gunnar sem kvað það stíl Samfylkingarinnar og Vinstri grænna að sverta menn persónulega. „Það hefur verið keyrt á persónur manna og fjölskyldur þeirra,“ segir Gunnar sem telur sig hafa fengið „sinn skammt og rúmlega það“ af slíkum vinnubrögðum. Guðríður óskaði í síðustu viku eftir útskrift á bæjarstjórnarfundinum 13. nóvember. Hún hafði ekki fengið útskriftina þegar rætt var við hana í gær og sagðist ekki vilja tjá sig nánar um málið á meðan. Búast má við að það verði rætt á bæjarstjórnarfundi í dag.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira