Áætlanir um Hörpu – svar til Hjörleifs Stefánssonar arkitekts Stefán Hermannsson skrifar 11. ágúst 2012 06:00 Það er óhjákvæmilegt að gera nokkrar athugasemdir við grein Hjörleifs Stefánssonar arkitekts sem birtist í Fréttablaðinu miðvikudaginn 8. ágúst. Undirritaður er þó honum sammála um að Harpa sé gott tónlistarhús og mikilvæg fyrir menningarlíf okkar. Ljóst er að fyrir stjórnendum Hörpu liggur erfitt verkefni við að ná rekstri hússins í viðunandi horf á nokkrum árum, og þarf Harpa á velvild allra landsmanna að halda til að auka aðsókn og nýtingu á húsinu. Ekki þjónar það miklum tilgangi að velta núna upp deilum um þau hús sem ekki sigruðu í samkeppninni á sínum tíma. Hjörleifur var í fyrirsvari fyrir slíku verkefni sem ekki hlaut nægilega góða umsögn til að halda áfram, þó ýmislegt væri þar vel gert af arkitektinum Jean Nouvel. Í útboðslýsingu á sínum tíma var í fyrsta umgangi möguleiki á að gera grein fyrir tveimur stærðum á aðalsal, 1500 sæti eða 1800 sæti. Fyrir valinu varð stærri salur og virðist HS telja að sú stækkun hafi verið ein aðal ástæðan fyrir stækkun hússins, en staðreynd er að stækkun salarins er aðeins brot af þeirri heildarstækkun sem varð á húsinu í ferlinu. Þau atriði sem Austurhöfn ákvað og höfðu áhrif á stækkun voru annars vegar að bæta við fjórða salnum, Kaldalóni og hins vegar þessi stækkun aðalsalar. Miðað við þær móttökur sem húsið hefir fengið og mikla notkun fyrir tónlist af ýmsum toga er það enn bjargföst trú okkar að þessi ákvörðun hafi verið rétt. Svipað má segja um Kaldalón, þó ekki sé hægt að dæma um það fyrr en nýting komandi ára kemur í ljós. Aðalstækkun hússins var ákvörðun Portusar fyrir hrun. Annars vegar stærra sýningarrými, tveir veitingastaðir, verslanir og sérstök fundarherbergi sem voru strax tilgreind í tilboði. Hins vegar ný rými m.a. fyrir skrifstofur o.fl. sem ekki höfðu tilgreinda nýtingu í upphaflegum áætlunum. Þessi rými gerðu mögulegt að bæta Óperunni við sem föstum leigjanda í húsinu. Um þetta má deila en allt lá það fyrir fyrir hrun. Þess má þó geta að flest svipuð tónlistarhús eru bara opin rétt á meðan á tónleikum stendur, en hér er alltaf opið, sem er jákvætt, en kostar auðvitað sitt í rekstri. Þessa sömu stækkun aðalsalar tengir HS svo við hugmyndir núverandi stjórnenda Hörpu um hækkun á leigu Sinfóníuhljómsveitar og Íslensku óperunnar. Undirritaður telur að unnt sé að benda á nokkrar breyttar forsendur sem geta réttlætt að hækka leigu þessara aðila lítilsháttar. Hvorki í þeim hugleiðingum sem settar hafa verið fram um þetta efni, né í neinum öðrum gögnum hefur þetta atriði verið nefnt og á það ekki með neinum hætti að geta haft áhrif á niðurstöðu þessa máls. Loks ásakar HS Austurhöfn um að hafa vísvitandi vanáætlað fasteignagjöld og almennt hafi menn séð fyrir að reksturinn gæti ekki gengið upp fjárhagslega en skellt við því skollaeyrum. Alveg frá byrjun þessa verkefnis hefur það legið fyrir að fasteignamat skuli endurspegla markaðsvirði og vera metið út frá rekstrarafkomu, þannig litum við á málið. Ráðgjafar Portusar eru á sama máli. Það er því ekkert sjálfgefið, eins og Hjörleifur telur vera sjálfsagt, að matið taki mið af stofnkostnaði. Í okkar tilfelli er svo hluti stofnkostnaðar tilkominn fyrir hrun sem almannasjóðir munu aldrei borga. Við töldum við yfirtöku að markaðsvirði verksins eins og það stóð væri núll, enginn myndi kaupa á þeim tíma og því bæri fyrst og fremst að líta á kostnað eftir hrun. Til að taka dæmi til samanburðar þá liggur fyrir samkvæmt opinberum tölum að Óperan í Kaupmannahöfn sem er skráð 29.500 m² að stærð, hafi kostað 2,5 milljarða danskra króna, en fasteignamat 2011 er 14,6 milljarða danskra króna eða um 58% af stofnkostnaði. Fasteignagjald á m² í þessu húsi er það sama og Hörpu er nú ætlað að greiða. Bella Center sem er 137.000 m² að stærð greiðir það sama í fasteignaskatt og Hörpu er nú ætlað að gera. Aarhus Koncerthus sem er 35.000 m² að stærð og að ýmsu sambærilegt við Hörpu greiðir 44 milljónir íslenskra króna í fasteignagjöld á ári, en Hörpu er gert að greiða 326 milljónir króna og yfirtökuáætlunin gerði ráð fyrir 180 milljónum á ári. Ég tel því að okkar áætlanir hafi verið eðlilegar hvað þetta atriði snertir. Það skal tekið fram að stjórn Austurhafnar hefur ekki fjallað ítarlega um fasteignaskattinn og ekki gert neinar ályktanir þar um, framanskráð eru mínar skoðanir. Mér þykir ásakanir HS um mat stjórnenda á rekstrarafkomu ansi þungar og ómaklegar. Upphaflegar áætlanir voru unnar af ýmsum aðkeyptum ráðgjöfum og voru vandlega unnar. Þegar kom að því að meta viðskiptaáætlanir bjóðendanna voru fengin tvö íslensk ráðgjafarfyrirtæki sem gáfu umsagnir um viðskiptaáætlanirnar. Viðhöfn átti í vissum erfiðleikum við að ná endum saman ekkert síður varðandi stofnkostnað heldur en rekstur eins og HS minnist á núna. Frá upphafi var ætlað að hafa ráðstefnur og aðstöðu fyrir þær í húsinu og töldu menn að það væri til bóta til lengri tíma litið. Ég tek eftir því í viðtali við HS að hann virðist ekki ánægður með ráðstefnuaðstöðuna. Hvort sú ákvörðun var rétt eða ekki skal ég ekkert fullyrða um en hún var hluti af forsendum samnings ríkis og borgar um verkefnið. Hvað sem um gæði og framsýni upphaflegra áætlana má segja vil ég fullyrða að þær voru settar fram af heilindum. Nú er best að gefa stjórnendum Hörpu tóm til að gera áætlun til nokkurra ára og láta bíða umfjöllun um einstök álitamál þangað til hún kemur fram. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opið bréf til Ingu Sæland Skoðun Læra nemendur meira ef skóladögum fjölgar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Þöggun - Okkar Borg Sigfús Aðalsteinsson ,Baldur Borgþóirsson Skoðun Hálfsannleikur og ósannindi Magnúsar Árna Skjaldar Magnússonar Hjörvar Sigurðsson Skoðun Ísland í Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki um val milli lífs og dauða heldur um það hvernig við hlúum að fólki í lok lífs Ingrid Kuhlman Skoðun Virðingaleysi í samfélaginu Marta Wieczorek Skoðun Ógnir núna ekkert á við áhættu framtíðar Jóhanna Hlín Auðunsdóttir Skoðun Fjármálaáætlun - satíriskt leikrit í óteljandi þáttum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Ertu Jón eða séra Jón? Guðný Björk Pálmadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki firrt okkur ábyrgð Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Samfella í verki - Framtíðarsýn Okkar Hveragerðis Sandra Lind Brynjarsdóttir,Jónas Guðnason ,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Virðingaleysi í samfélaginu Marta Wieczorek skrifar Skoðun Ertu Jón eða séra Jón? Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Læra nemendur meira ef skóladögum fjölgar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ísland í Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Ógnir núna ekkert á við áhættu framtíðar Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til Ingu Sæland skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki um val milli lífs og dauða heldur um það hvernig við hlúum að fólki í lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fjármálaáætlun - satíriskt leikrit í óteljandi þáttum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hálfsannleikur og ósannindi Magnúsar Árna Skjaldar Magnússonar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Píslargangan gleymd – og börnin bera afleiðingarnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trump, Íran, Úkraína og NATO Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Þöggun - Okkar Borg Sigfús Aðalsteinsson ,Baldur Borgþóirsson skrifar Skoðun Meira er ekki alltaf betra í skólastarfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Um Ketilsbraut 7-9 – Stjórnsýsluhús Norðurþings Rúnar Traustason skrifar Skoðun Frá hásæti orkudrottningar Kristín Linda Árnadóttir skrifar Skoðun Að hafna viðræðum er að hafna upplýsingum Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Einn mánuður af átökum: Börn gjalda mest fyrir stríðið í Mið-Austurlöndum Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Þau sem töluðu um hvalrekaskatt og hin sem þora að leggja hann á Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Mikið vona ég að þetta sé ekki rétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Veldur hver á heldur! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Gott samfélag verður ekki til af sjálfu sér Marta Rut Ólafsdóttir skrifar Skoðun Gerðir samningar sviknir af ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki byggt vernd barna á tilviljunum! Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ekki minn kaffibolli Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sniðgöngum ísraelska lyfjarisann Teva eins og Rapyd Björn B Björnsson skrifar Skoðun Tveggja ára reynsla af samkeppnisundanþágum á kjötmarkaði Breki Karlsson, Ólafur Stephense skrifar Skoðun Erindislaus meirihluti leggur á flótta Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Bókasafnið mitt - Heimili að heiman Lísa Z. Valdimarsdóttir skrifar Sjá meira
Dánaraðstoð snýst ekki um val milli lífs og dauða heldur um það hvernig við hlúum að fólki í lok lífs Ingrid Kuhlman Skoðun
Skoðun Samfella í verki - Framtíðarsýn Okkar Hveragerðis Sandra Lind Brynjarsdóttir,Jónas Guðnason ,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki um val milli lífs og dauða heldur um það hvernig við hlúum að fólki í lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Einn mánuður af átökum: Börn gjalda mest fyrir stríðið í Mið-Austurlöndum Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar
Skoðun Þau sem töluðu um hvalrekaskatt og hin sem þora að leggja hann á Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Tveggja ára reynsla af samkeppnisundanþágum á kjötmarkaði Breki Karlsson, Ólafur Stephense skrifar
Dánaraðstoð snýst ekki um val milli lífs og dauða heldur um það hvernig við hlúum að fólki í lok lífs Ingrid Kuhlman Skoðun