Hljóp á 57,57 á 57 ára afmælinu 21. ágúst 2012 05:30 Sigurbjörg varð mjög undrandi þegar hún heyrði tímann á hlaupinu. Fréttablaðið/valli „
Það er kannski spurning um að fá talnasérfræðing til að rýna í þessar tölur. Ég er viss um að við hefðum bæði gaman af því," segir doktor Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, lektor í stjórnsýslufræðum við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og hlaupari. Sigurbjörg fagnaði 57 ára afmæli sínu á laugardaginn og bætti um betur með því að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu á hinum skemmtilega viðeigandi tíma 57,57 mínútum. Aðspurð segir Sigurbjörg að sekúndubrotin hafi ekki verið 57 eins og mínúturnar og sekúndurnar, en það skemmi þó ekki ánægjuna og undrunina með þennan skemmtilega tíma. „Þetta er alveg ótrúlegt. Ég segi í gríni að það verið útpælt að koma í mark á þessum tíma vegna afmælisins og gef þannig í skyn að ég hefði getað hlaupið þetta hraðar," segir hún og hlær. „Sannleikurinn er sá að þetta var hreinasta tilviljun og ég varð mjög hissa þegar ég sá tímann. Eftir hlaupið naut ég afmælisdagsins og menningarnætur í hverfinu mínu, Goðahverfinu, þar sem alls konar fólk kom í heimsókn. Ég var dálítið hátt uppi af endorfíni og sagði öllum sem heyra vildu frá þessari skemmtilegu tilviljun." Sigurbjörg hefur hlaupið síðan 2001, þegar hún fór sitt fyrsta maraþon í London. „Þá hljóp ég maraþonið á fjórum klukkustundum og fjórtán mínútum. Á sama tíma sló Paula Radcliffe heimsmetið þegar hún hljóp á tveimur klukkutímum og fjórtán mínútum, einungis tveimur klukkutímum skemur en ég. Svo hljóp ég Reykjavíkurmaraþon árið 2004 og bætti tímann minn um níu mínútur, en síðan þá hef ég hlaupið hálfmaraþon bæði hér heima og erlendis," segir Sigurbjörg og bætir við að yfir sumartímann hlaupi hún að meðaltali um tuttugu til tuttugu og fimm kílómetra á viku. „Ég fer út að hlaupa tvisvar til þrisvar í viku og fer varla út fyrir mikið minna en átta kílómetra. Mjög oft hleyp ég fimmtán kílómetra og hleyp mikið fyrir ofan Reykjavík, oft heiman frá mér upp í Selás og stundum í kringum Rauðavatn og þar um kring. Mér finnst gott að hlaupa ein, pæli mikið og hugsa í lausnum á leiðinni, en ég fæ líka lánaða labradorhunda hjá systkinum og vinum. Það er fínt að hafa hundana til að halda mér við efnið." Aðspurð segir Sigurbjörg stefnuna setta á tímann 58,58 í sama hlaupi að ári. „Ég verð að fara að æfa mig strax undir það. Þetta er úthugsað sport, ekki síður en líkamlegt." kjartan@frettabladid.is
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Erlent Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Innlent Fleiri fréttir Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar Hafa þurft að leiðbeina starfsfólki barnaverndar um réttindi fósturbarna Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Sjá meira