Innlent

Átök í Elliðarárdal í nótt - átta piltar köstuðu grjóti að íbúa

Veiðimenn í Elliðarárdal. Mynd tengist frétt ekki beint.
Veiðimenn í Elliðarárdal. Mynd tengist frétt ekki beint.
Átta ungir karlmenn hófu grjótkast að húsráðanda í Elliðaárdal þegar hann ætlaði að hafa tal af þeim fyrir utan heimili sitt í nótt. Hann komst ómeiddur undan og hringdi á lögreglu, en þegar lögreglumaður kom á vettvang ætlaði einn árásarmaðurinn að komast undan á bíl.

Lögreglumaðurinn náði að opna ökumannshurðina og ætlaði að ræða við piltinn, sem er 17 ára, en hann skipti þá í afturábak svo fótur lögreglumannsins klemmdist undir opinni hurðinni undir hurðinni og meiddist hann á ökla. Lögreglumaðurinn beitti þá varnarúða og náði að yfirbuga piltinn.

Skömmu síðar var annar piltur, 16 ára , handtekinn á vettvangi. Lögreglumaðurinn var fluttur á slysadeild, ásamt unga ökumanninum, sem hafði skrámast við handtökuna. Hann er nú vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×