Sport

Árni synti á sama tíma og fyrir fjórum árum | endaði í 31. sæti

Árni Már Árnason.
Árni Már Árnason. Mynd/Valli
Árni Már Árnason varð fimmti í sínum riðli í 50 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í London. Hann kom í mark á tímanum 22,81 sek, sem er nákvæmlega sami tími og hann synti á fyrir fjórum árum á ÓL í Peking. Íslandsmet hans er 22,53 sek., sem hann setti á þeessu ári.

Árni endaði í 31. sæti. George Richard Bovell frá Trínidad og Tóbago náði besta tímanum í dag eða 21,77 sek. Heimsmetið er 20,91 og er það í eigu Brasilíumannsins Cesar Cielo sem hann

setti árið 2009. Hann á einnig Ólympíumetið, 21,30 sek., sem er frá leikunum í Peking í Kína 2008.


Tengdar fréttir

Árni: Mikilvægustu 20 sekúndur lífs míns

Vísir kynnir til sögunnar íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í London. Í dag er komið að Árna Má Árnasyni sem keppir í 50 m skriðsundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×