Sport

Blake er með sjálfstraust til þess að sigra Bolt

Yohan Blake frá Jamaíku er til alls líklegur í 100 metra hlaupinu á Ólympíuleikunum í London
Yohan Blake frá Jamaíku er til alls líklegur í 100 metra hlaupinu á Ólympíuleikunum í London Nordic Photos / Getty Images
Yohan Blake frá Jamaíku er til alls líklegur í 100 metra hlaupinu á Ólympíuleikunum í London. Blake hefur tvívegis haft betur gegn landa sínum Usain Bolt og hinn 22 ára gamli Blake er með sjálfstraust fyrir viðureignina gegn Bolt.

Bolt á heimsmetin í 100 og 200 metra hlaupunum sem hann setti á heimsmeistaramótinu í Berlín 2009, og bætti hann þar með metin sem hann setti á ÓL á Peking.

„Ég er ekki að hugsa um Usain Bolt. Ég er að hugsa um það sem snýr að mér og hvað ég þarf að gera til þess að klára verkið. Ef ég hugsa um Usan Bolt og aðra keppinauta mína eru líkur á því að ég nái ekki markmiðum mínum.

Blake er heimsmeistari í 100 metra hlaupi en hann kom fyrstur í mark á HM sem fram fór í Daegu í Suður-Kóreu í fyrra. Þar var Usain Bolt dæmdur úr leik fyrir þjófstart.

Blake hafði betur gegn Bolt í úrtökumótinu fyrir ÓL á Jamaíku í 100 og 200 metra hlaupunum.

„Sigur er alltaf sigur. Ég fékk sjálfstraust eftir sigurinn í Daegu, ég veit hvað ég get . Fyrir mér snýst þetta um að fara út á brautina, keppa við hina, og koma fyrstur í mark," sagði Blake við fréttamenn í London.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×