Deilur um lóð sem Eiður Smári skilaði 25. ágúst 2012 05:00 „Án efa með fallegri byggingarlóðum sem í boði eru í dag,“ segir á söluvef Remax sem kveður staðsetningu lóðarinnar Hólmaþings 7 vera „ótrúlega“. Fréttablaðið/Valli
Eiður Smári Guðjohnsen skilaði einbýlishúsalóð á besta stað við Elliðavatn sem Kópavogsbær úthlutaði. Eina tilboðið sem bænum hefur borist er sagt of lágt. Það er frá tengdasyni formanns framkvæmdaráðs sem vék er málið var afgreitt. Bæjarráð Kópavogs hefur hafnað rúmlega sautján milljóna króna tilboði sem barst í einbýlishúsalóðina Hólmaþing 7 við Elliðavatn. Hjónunum Eiði Smára Guðjohnsen og Ragnhildi Sveinsdóttur var úthlutað lóðinni sumarið 2005 en byggðu aldrei á henni og fengu lóðina endurgreidda hjá Kópavogsbæ í vor. „Með vísan til þess að undirritaður ásamt fjölskyldu sinni hefur ekki hug á að flytja til Íslands í nálægri framtíð óska ég hér eftir því að skila lóðinni,“ segir í bréfi Eiðs Smára til Kópavogsbæjar. Hólmaþing 7 er talin einstök byggingarlóð vegna staðsetningar sinnar. Samkvæmt mati á bæjarskrifstofunum er virði hennar 19,9 milljónir króna. Í stað þess að auglýsa lóðina lausa til umsóknar var ákveðið fyrr í sumar að freista þess að fá hærra verð með því að fela tveimur fasteignasölum að selja lóðina hæstbjóðanda. Á fundi framkvæmdaráðs Kópavogs um miðjan þennan mánuð var lagt fram ríflega sautján milljóna króna kauptilboð í lóðina. Það var frá Birni Jakobi Björnssyni, eiginmanni Agnesar Gunnarsdóttir. Hún er dóttir formanns framkvæmdaráðs Kópavogs, Gunnars Birgissonar, bæjarfulltrúa úr Sjálfstæðisflokki. Gunnar vék af fundi við afgreiðslu framkvæmdaráðs sem ákvað að hafna tilboðinu. Bæjarráð staðfesti þessa afgreiðslu síðan á fimmtudag. Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar og fulltrúi í framkvæmdaráðinu, lagði til að hætt yrði við söluna í gegnum fasteignasölurnar tvær og lóðin auglýst af bænum sjálfum og óskað eftir umsóknum um hana. Síðan yrði dregið á milli umsækjenda á hefðbundinn hátt og lóðin seld á áðurnefndar 19,9 milljónir. Framkvæmdaráð vísaði hins vegar málinu til bæjarráðs sem ákvað, að tillögu Ómars Stefánssonar úr Framsóknarflokki, að reyna til þrautar að selja lóðina á almennum markaði; fá á fleiri fasteignasölur að málinu og auglýsa lóðina sömuleiðis á vef bæjarins. Guðríður segir eftirgrennslan hafa leitt í ljós að Hólmaþing 7 hafi ekki verið auglýst í dagblöðum heldur aðeins á heimasíðu Remax og ekkert af hálfu Eignaborgar sem þó miðlaði fyrrgreindu tilboði til bæjarins. „Það er mjög sérkennilegt að við séum að fela þessum fasteignasölum að selja lóðina í þeirri von að við fáum meira fyrir hana og svo auglýsa þær hana ekki einu sinni,“ segir Guðríður. „Ég tel langt í frá fullreynt að selja lóðina,“ bókaði Ómar á bæjarráðsfundinum. Samkvæmt tillögu hans er fasteignasölunum gefinn frestur til 30. september að selja lóðina. Verði lóðin óseld þá verður hún sett í hefðbundna úthlutun. gar@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Sjá meira