Jóhanna: Stóraukin fjárfesting Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. september 2012 20:01
Fjárfesting fyrstu sex mánuði ársins 2012 jókst um 19,3% samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2011, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í stefnuræðu sinni í kvöld. Hún sagði að fjárfesting atvinnuvega hefði aukist um 27,1% og íbúðafjárfesting um 7,7% en fjárfesting hins opinbera dregist saman um 6,2% á sama tímabili. „Fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar er mikilvægur leiðarvísir á þeirri vegferð að auka fjárfestingar enn frekar og skapa ný störf, en eftirfylgni þeirrar áætlunar verður eitt af mikilvægum samstarfsverkefnum okkar þingmanna á komandi vetri. Með nýsamþykktum stórauknum veiðigjöldum af sameiginlegri fiskveiðiauðlind þjóðarinnar hefur um helmingur af tilskildu fjármagni vegna áætlunarinnar verið tryggður og er áhrifa hennar þegar farið að gæta. Nefni ég sérstaklega undirbúning framkvæmda við Norðfjarðargöng, sem hefjast munu á næsta ári, en einnig stórefld framlög til rannsókna og tækniþróunar og sóknaráætlana landshluta," segir Jóhanna. Þá sagði Jóhanna að komandi þing væri lokasprettur þessa kjörtímabils og tækifæri fyrir þann þingheim sem þjóðin veitti umboð sitt í síðustu kosningum til að sýna aðra og betri mynd af störfum þjóðþingsins en birst hefur á liðnum þingum. „Sú birtingarmynd hlýtur að vera okkur öllum mikið áhyggjuefni. Hún hefur gengið fram af þjóðinni með þeim afleiðingum að traust hennar til þessarar merku og sögufrægu stofnunar okkar Íslendinga er í sögulegu lágmarki," sagði Jóhanna. Athygli vekur að Jóhanna vék ekki einu orði að störfum Evrópusambandsins, en fyrr á kjörtímabilinu samþykkti ríkisstjórnin aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir E. coli greindist í neysluvatni íbúa Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Sjá meira