Fær ekki bætur fyrir varðhaldsvist 3. júlí 2012 05:00 Maðurinn þótti ekki samvinnufús við rannsókn málsins. Fréttablaðið/stefán
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af bótakröfu íslensks atvinnurekanda sem sat í gæsluvarðhaldi um þriggja vikna skeið haustið 2009 grunaður um aðild að mansalsmáli. Maðurinn var ákærður í málinu en fundinn sýkn saka. Málið hófst þegar ung litháísk stúlka kom til landsins í gríðarlegu uppnámi og var færð til yfirheyrslu í kjölfarið. Að endingu voru fimm litháískir menn dæmdir í fimm ára fangelsi hver fyrir að hafa flutt stúlkuna nauðuga til landsins og ætlað henni að vinna hér gegn vilja sínum. Íslendingurinn var fljótlega handtekinn vegna málsins, þegar í ljós kom að hann hafði átt í miklum samskiptum við Litháana í kringum komu stúlkunnar. Maðurinn neitaði hins vegar alltaf sök og þegar hann var loks sýknaður fór hann í skaðabótamál vegna varðhaldsvistarinnar og atvinnumissisins og krafðist sautján milljóna í bætur. Dómurinn kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að framburður mannsins hafi alla tíð verið mjög misvísandi um tengsl hans við Litháana og vitneskju um málið. Hann hafi þannig stuðlað að því að honum yrði haldið í gæsluvarðhaldi og varðhaldstíminn hafi því ekki verið óhóflega langur. - sh
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði Sjá meira