Hélt konu nauðugri í tvær klukkustundir BBI skrifar 3. júlí 2012 09:59 Ólafsfjörður
Eftir að hafa stungið kunningja sinn fjórum sinnum með litlum hníf ruddist karlmaður á þrítugsaldri óboðinn inn í íbúð á Ólafsfirði. Þar var ein kona fyrir sem hann varnaði útgöngu, hélt þar fanginni í um tvo tíma og kom í veg fyrir að hún hringdi á lögreglu. Atvikin áttu sér stað á aðfararnótt laugardagsins. Rannsóknarlögreglan á Akureyri hefur málið til rannsóknar, en áður en maðurinn svipti konuna frelsi í heimahúsi hennar hafði honum lent upp á kant við kunningja sinn, eins og Vísir greindi frá á laugardaginn. Þeim deilum lauk með því hann stakk kunningja sinn með hníf og flúði af vettvangi. Þaðan hélt hann rakleitt í hús vinafólks síns og ruddist þar óboðinn inn samkvæmt heimildum Vísis innan lögreglunnar. Þar var konan fyrir. Að sögn konunnar óttaðist hún um líf sitt enda fylgdi maðurinn henni hvert fótmál eða dró hana á milli staða svo að hann sæi hana. Um síðir tókst konunni að komast afsíðis og náði að hringja í lögreglu. Hún slapp ómeidd út úr íbúð sinni en var að eigin sögn í miklu andlegu ójafnvægi. Að sögn lögreglu hefur maðurinn þegar verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins. Hann er lögreglu góðkunnur vegna óreglu sinnar. Hann verður að líkindum ákærður fyrir annars vegar sérlega hættulega líkamsárás og hins vegar frelsissviptingu, því þó hann hafi ekki gert konunni neitt mein varðar við lög að halda henni fanginni í tvo tíma.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira