Innlent

Fimm hundruð stöðvaðir í átaki lögreglunnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan var með umferðarátak um helgina.
Lögreglan var með umferðarátak um helgina. mynd/ stefán.
Fimm hundruð ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Níu þeirra þeirra reyndust ölvaður við stýrið og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Eftirlitið fór meðal annars fram í miðborginni og í Víðidal, en þar var haldið velheppnað Landsmót hestamanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×