Serbar fyrstir til að tryggja sig inn í undanúrslitin á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2012 20:49 Mynd/AFP
Serbía tryggði sér sæti í undanúrslitum á EM í handbolta í Serbíu eftir þriggja marka sigur á Svíþjóð, 24-21, í lokaleik dagsins í milliriðli eitt. Serbar er því komnir með sjö stig (af átta mögulegum) og hafa tveggja stiga forskot á Þjóðverja og þriggja stiga forskot á Dani þegar ein umferð er eftir. Svíar eru hinsvegar neðstir í milliriðlinum. Marko Vujin skoraði 5 mörk fyrir Serba og Zarko Sesum var með fjögur mörk en Darko Stanic fór síðan á kostum í markinu. Kim Ekdahl du Rietz skoraði 8 mörk fyrir Svía, Niclas Ekberg var með 4 mörk og Johan Sjöstrand varði 18 skot í markinu. Svíar virtust ætla að bíta frá sér í byrjun leiks því þeir komust í 6-3 eftir tæpar tólf mínútur. Serbar skoruðu þá fimm mörk í röð og komust 8-6 yfir. Serbarnir voru síðan einu til tveimur mörkum á undan út hálfleikinn og leiddu að lokum með þremur mörkum í hálfleik, 14-11. Serbar náðu fjögurra marka forskoti í upphafi seinni hálfleiks en Svíar gáfust ekki upp og minnkuðu muninn í eitt mark, 18-17, þegar tólf mínútur voru eftir af leiknum. Serbar voru hinsvegar sterkari, náðu strax aftur þriggja marka forskoti og lönduðu síðan sigrinum og sætinu í undanúrslitunum við mikinn fögnuð áhorfenda í höllinni.Úrslit, dagskrá og staðan í öllum riðlum
Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Fleiri fréttir Liðið sem fylgdi Íslandi á HM náði ekki að vinna leik EM í dag: Liðsstyrkur og meiðsli í Malmö Elvar kemur inn fyrir Elvar Lærisveinar Dags spila bönnuðu lögin í klefanum Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Þarf að beisla Einar aðeins en líst vel á samstarfið Nefmæltur Einar „stórkostlegur“ eftir „ógeðslega“ daga í einangrun Þúsundir Færeyinga fögnuðu með liðinu í eftirpartýi Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu „Mér líður bara ömurlega“ Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Svona meiddist Elvar „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Elvar úr leik á EM Tvö hæfileikabúnt í Íslendingabæinn Kristianstad Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Miðar á leikina í milliriðlinum rjúka út Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ EM í dag: Flensuleikur Jordans og athyglissjúkir dómarar Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Vitum ekki um tvo fyrstu mótherjana fyrr en annað kvöld Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð „Núna er allt betra“ Logi Geirs hefði verið sáttur með svona „hárgreiðsluskot“ „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ „Ég hef prófað þetta og þetta virkar“ „Bara vá, ég er svo glaður“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Tölfræðin á móti Ungverjum: Viktor lokaði í átta mínútur þegar ekkert gekk Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Sjá meira