Innlent

Nóg af prófkjörum í dag

Frá prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2006
Frá prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2006 Mynd/Anton Brink
Sjö prófkjör, forvöl eða uppstillingar á lista flokka fyrir komandi þingkosningar fara fram um helgina víðsvegar um land.

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík stendur fyrir prófkjöri í dag og opnuðu kjörstaðir klukkan níu og verða opnir til klukkan sex.

Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi velja á framboðslista á kjördæmisráðsfundi sem stendur um helgina og á sama tíma stilla Framsóknarmenn -upp á sinn lista í sama kjördæmi.

Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi stendur fyrir póstkosningu til að velja á sitt fólk og verða úrslit kunn í henni eftir helgi.

Þá er Vinstrihreyfingin - grænt framboð með forval í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi og uppstilling verður viðhöfð á lista flokksins í Suðurkjördæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×