Innlent

Íslenskum hjónum bjargað úr sjálfheldu í Helgafelli

Íslensk hjón, bæði þaulreynd í fjallgöngum, lentu í sjálfheldu í klettabelti í hlíðum Helgafells, austan við Hafnarfjörð í gærkvöldi og kölluðu eftir hjálp.

Þar sem aðstæður voru erfiðar og hættulegar, voru 26 sérþjálfaðir fjallabjörgunarmenn frá Landsbjörgu kallaðir út um tíu leitið í gærkvöldi og tókst þeim með töluverðri fyrirhöfn að hífa fólkið upp og koma því úr hættu.

Hvorugt þeirra sakaði og lauk aðgerðinni upp úr miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×