Bensín ætti að lækka meira 5. júní 2012 05:00 Framkvæmdastjóri FÍB vill að bensínverð lækki enn frekar. Forstjóri N1 segir að allar lækkanir hafi þegar skilað sér. Fréttablaðið/gva
Enn er svigrúm fyrir frekari lækkanir á eldsneytisverði að mati FÍB þrátt fyrir að gengi krónunnar vinni á móti verðlækkunum á heimsmarkaði. Forstjóri N1 segir verðlækkanirnar þegar hafa skilað sér að fullu. Mikil lækkun hefur orðið á eldsneytisverði á heimsmarkaði undanfarið og hefur verðið ekki verið lægra síðan snemma á síðasta ári. Lækkunin hefur ekki skilað sér að öllu leyti til neytenda að mati framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). „Að teknu tilliti til gengisþróunar íslensku krónunnar og meðalálagningar á bensín og dísilolíu þá ættu olíufélögin að hafa svigrúm til að lækka verðið um 3 til 4 krónur í viðbót,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. Samkvæmt tölum frá félaginu hefur verðið á brenndri hráolíutunnu verið hæst í yfir 126 dollurum, en hefur verið að sveiflast undir 98 dollara undanfarið. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segir miklar verðlækkanir hafa þegar átt sér stað hjá fyrirtækinu, og að þær breytingar sem orðið hafi á heimsmarkaðsverði hafi nú þegar skilað sér til neytenda. Hann segir verðið hafa í raun verið á samfelldri niðurleið síðustu sex vikurnar. „Við erum búnir að lækka verðið núna á sex vikum um 20 krónur, þó svo að það hafi ekki verið mikið um það fjallað,“ bendir Hermann á og vísar til lítraverðs á 95 oktana bensíni í sjálfsölu. Hermann segir verðlækkanirnar hafa skilað sér hratt og örugglega til neytenda. „Við erum búnir að skila öllum þeim lækkunum sem komu fyrir helgi út í verðlagið. Svo kom lækkun seint á föstudaginn, eftir að íslensku mörkuðunum var lokað og sú lækkun kom til framkvæmda fyrir klukkan níu á mánudag.“ Hermann bendir á að á sama tíma og olíuverð hefur farið lækkandi hefur gengi krónunnar versnað. Þetta hafi óneitanlega áhrif á verð bensínlítrans. „Þegar olían lækkar úti en krónan gefur eftir er engin inneign eftir til frekari lækkunar. Það er bara þannig,“ segir Hermann. Runólfur væntir þó enn frekari lækkana. „Olíuverð hefur haldið áfram að síga í dag sem ætti að virka jákvætt fyrir neytendur.“- ktg
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira