Innlent

Ferðamönnum komið til bjargar á Sólheimasandi

Björgunarsveit frá Vík í Mýrdal var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða ferðamenn sem höfðu fest bíl sinn í sandbleytu á Sólheimasandi. Þeim var þó engin hætta búin.

Þeir höfðu ætlað að aka að flaki flutningavélar frá Varnarliðinu, sem nauðlenti þar á sandinum fyrir mörgum árum. Björgunarleiðangurinn gekk vel og héldu ferðamennirnir áfram ferðalagi sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×