Innlent

Krefjast gæsluvarðhalds yfir apóteksræningjum

Lögreglan á Akureyri krafðist í gær gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir karli og konu á þrítugsaldri, sem í fyrradag gerði ránstilraun í apóteki í bænum.

Þau slógu þar starfsmann í höfuðið með kúbeini, en hann slapp með skrámur. Fólkið var undir áhrifum fíkniefna og var ekki hægt að hefja yfirheyrslur fyrr en upp úr hádegi í gær, þegar víman var runnin af því.

Dómari tók sér frest þartil í dag að taka afstöðu til kröfunnar, og er fólkið vistað í fangageymslum lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×