Innlent

Þyrla Landhelgisgæslunnar fann virka neyðarbauju

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann í gær neyðarbauju á Breiðafirði, en hún hafði einhverra hluta vegna dottið af fiskibáti í fyrarkvöld og sendi út neyðarboð.

Með tækjum úr þyrlunni var hægt að miða hana nákvæmlega út og reyndist hún vera við innsiglinguna að Stykkishólmi. Þangað var hún sótt og aftengd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×