Affallsvatn frá jarðhitavirkjunum nýtt til sköpunar BBI skrifar 5. júní 2012 10:44 Jarðböðin við Mývatn eru dæmi um að affallsvatnið hafi verið nýtt á uppbyggjandi hátt. Mynd/Mývatn nature baths
Kynningarfundur um möguleika á nýtingu á affallsvatni frá virkjunum við Mývatn verður haldinn í Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit kl. 2 næsta föstudag. Um er að ræða heitt vatn sem nú rennur frá jarðhitavirkjunum, niður í Mývatn og er jafnvel að skaða náttúruna. „Þetta eru náttúrlega bara peningar sem flæða frá okkur," segir Dagbjört Bjarnadóttir, oddviti Skútustaðahrepps. Nú stendur til að fá aðgang að þessu vatni og kanna hvernig hægt er að nýta það til að búa til afurð, t.d. rækta þörunga. Enn er ekki ákveðið hvers kyns afurð verður framleidd, en möguleikarnir eru margir og spennandi. „Við getum búið til fæðubótarefni, litarefni, eldsneyti, áburð," segir Dagbjört. „Við þurfum bara að kanna hvað skaðar ekki umhverfið og hvaða afurð við gætum selt." Næsta skref verður að fá sérfræðing til fræðilegrar rannsóknar- og undirbúningsvinnu. Skoðuð verður ræktun smáþörunga, hvernig hægt er að skima þá og hvað gæti orðið hugsanleg framleiðsluvara. Sérfræðingurinn mun byrja í október og hefur sex mánuði til stefnu. Eftir þann tíma mun liggja fyrir hvað verður gert. „Þá get ég svarað spurningunum sem eru spennandi, eins og hvað ætlum við nákvæmlega að gera?" segir Dagbjört. Á fundinum næsta föstudag verður hugmyndin kynnt og fjallað um meginstoðir sem vinnan mun byggja á. Dagskrá fundarins verður sem hér segir: Dagbjört Bjarnadóttir segir frá tilurð og aðdraganda verkefnisins. Hjörleifur Einarsson, deildarformaður auðlindadeildar Háskólans á Akureyri, tækifæri og möguleg starfsemi. Logi Már Einarsson, arkitekt, mun gefa fólki hugmynd um útlitslega þætti verkefnisins. Sigurður Steingrímsson, verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð, segir frá stöðunni í dag og framtíðarsýn.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira