Innlent

Laxveiðin í Norðurá hafin, fyrsti laxinn kominn á land

Laxveiðin í Norðurá er hafin en upphaf veiða þar er jafnan talið marka upphaf laxveiðitímabilsins. Þegar er búið að landa fyrsta laxinum en hann veiddi Bjarni Júlíusson formaður SVFR.

Að sögn veiðimanna, sem gengu með ánni í gær, hefur ekki sést svona mikið af laxi í ánni síðan árið 1996, eða í 16 ár, vatnið er gott og var mikill hugur í veiðimönnunum þegar þeir voru að búa sig af stað á sjöunda tímanum.

Norðurá er í hópi gjöfulustu laxveiðiáa landsins og er veitt þar á 12 stangir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×