Innlent

Laxveiðin fer mjög vel af stað

Árni Friðleifsson, varaformaður SVFR, þreytir lax í Norðurá í morgun.
Árni Friðleifsson, varaformaður SVFR, þreytir lax í Norðurá í morgun. Mynd / Svavar Hávarðsson
Sautján laxar komu á land í Norðurá og Blöndu í morgun en laxveiðitímabilið hófst formlega í dag með opnun þessarra tveggja áa.

Fyrsta lax dagsins var landað í Norðurá klukkan 7.22 eða þegar rétt um 22 mínútur voru liðnar af laxveiðisumrinu. Það var Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sem landaði þá um 10 punda, grálúsugri hrygnu. Þegar laxalús er á fiski gefur það til kynna að hann sé nýgenginn úr sjó því lúsin lifir aðeins í saltvatni og drepst því fljótlega eftir að lax gengur upp í ár.

Á fyrri vaktinni í Norðurá, sem lauk klukkan eitt, veiddust samtals 11 laxar og voru þeir stærstu á bilinu 11 til 13 pund. Fiskarnir voru allir veiddir á flugu enda er annað agn bannað í ánni. Þetta er besta byrjun á veiði í Norðurá á þessari öld.

Í Blöndu veiddust sex laxar í morgun og flestir þeirra á maðk. Aðstæður voru nokkuð í morgun. Mikill vindur og hiti ekki nema um 4 til 5 stig. Fiskarnir í Blöndu voru allir mjög vænir og sá stærsti vó 17 pund.

Veiðimenn í Norðurá og Blöndu halda aftur til veiða klukkan fjögur, en í laxveiði er nánast undantekningalaust veitt á tveimur vöktum. Annars vegar frá sjö til eitt og hins vegar fjögur til tíu. Það verður spennandi að sjá hvernig veiðideginum lýkur.

Hægt er að fylgjast nánar með þróun mála á Veiðivísi.


Tengdar fréttir

Fyrsti laxinn kom í Norðurá

Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, landaði fyrsta laxi sumarsins í Norðurá klukkan 7.22 í morgun. Þetta var um 10 punda hrygna og tók hún rauða Black Eyed Prawn, sem er eins og rauður Frances með svörtum augum.

Eyðir ekki tímanum í aðrar skepnur

"Ég held að það verði nú ekki mikil aflabrögð ef það verða óvanir menn við veiðar þarna," segir Þórarinn Sigþórsson tannlæknir sem í fyrsta skipti í háa herrans tíð er ekki við veiðar við opnun Blöndu í dag.

Þrír laxar á land í Blöndu í morgun

Tveir nýgengnir laxar og einn hoplax að auki hafa fengist í morgun við opnun svæðis 1 í Blöndu. Þetta kemur fram á agn.is. Hermann Svendsen veiddi fyrsta laxinn.

Sex laxar komnir á land í Blöndu

Sex laxar veiddust á fyrri vaktinni í Blöndu í dag. Fiskarnir hafa allir verið mjög vænir eða frá 10 og upp í 17 pund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×