Reykvískir víkingar ósáttir við borg sína Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. júní 2012 11:00 Víkingur í Félagsheimili Gunnar Víking Ólafsson, formaður Víkingafélagsins Einherja í Reykjavík, í húsnæði félagsins í Nauthólsvík. Einherjar sýna sig og listir sínar í Hallargarðinum í Reykjavík á hátíðarhöldunum 17. júní næstkomandi. Fréttablaðið/Vilhelm
Stuðning borgarinnar þarf til að hægt verði að koma á árvissri víkingahátíð í Reykjavík í ætt við þá sem haldin er í Hafnarfirði, að mati Gunnars Víking Ólafssonar, formanns Víkingafélagsins Einherja í Reykjavík. Hann segir borgina nú hóta að taka af félaginu húsnæði sem það hafði áður fengið gegn því að gera það upp, verði reykvíska víkingahátíðin ekki að veruleika. Um leið neiti borgin að styðja félagið til þess að halda hátíðina. „Félagið hefur verið til í fjögur og hálft ár,“ segir Gunnar Víking og kveður þá Einherja mjög ánægða með þá fyrirgreiðslu sem þeir hafi fengið hjá borginni í formi húsnæðis, þótt það hafi engan peningastyrk fengið. Félagið fékk inni í niðurníddum bragga í Nauthólsvík sem Flugmálastjórn hafði áður notað, gegn því að gera húsnæðið upp. „Í þrjú ár vorum við hins vegar bara að skylmast niðri á Klambratúni.“ Félagsmenn, sem eru fjórtán talsins, þar af tvær konur, hittast reglulega til að æfa vopnaburð og skylmingar fyrir sýningar. „Við viljum slá skjaldborg um menningararf okkar,“ segir Gunnar Víking og kveðst finna fyrir miklum áhuga erlendis á því að sækja heim víkingahátíð í Reykjavík. „En við þurfum að eiga hluti á borð við sölu- og sýningartjöld,“ segir hann, en tjöld verði ekki keypt nema að félagið fái styrk. „Við erum hins vegar tilbúin að byrja smátt, fyrst niðri í Nauthólsvík og færa okkur svo kannski síðar upp á Klambratún.“ Nú segir Gunnar Víking hins vegar að félagið fái þau skilaboð hjá eignaumsýsludeild borgarinnar að það kunni að missa húsnæðið í Nauthólsvík takist þeim ekki að halda víkingahátíðina. Gunnar Víking segir félagið hafa fengið vilyrði fyrir stuðningi borgarinnar í borgarstjóratíð Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, þótt ekki hafi legið fyrir í hvaða formi það yrði. Það hafi svo breyst í niðurskurði hjá nýrri borgarstjórn. Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs borgarinnar, segir peningaskort ástæðu þess að styrkumleitan Einherja hafi verið hafnað til þessa. Hins vegar væru fyrir því fordæmi að borgin styrkti uppákomur þar sem vel hafi tekist til. „Ef þeim tækist að halda hátíðina einu sinni í einhverri mynd, þá væri kannski komin forsenda til þess að styrkja áframhaldandi starfsemi,“ segir hann.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira