Ber sjálfur ábyrgð á hlutabréfakaupunum JHH og KHN skrifar 28. nóvember 2012 11:40 Guðmundur Jón Matthíasson stefndi íslenska ríkinu.
Íslenska ríkið, Fjármálaeftirlitið og Kauphöllin voru í morgun sýknuð af kröfu manns sem sagðist hafa verið rændur þegar hann keypti bréf í Glitni í vikunni eftir að ríkið tók yfir 75% hlut í bankanum haustið 2008. Hópur fólks sem tapaði milljörðum á kaupum hlutabréfa í Glitni vikuna fyrir þjóðnýtingu bankans stefndi ríkinu. Hópurinn sagðist hafa rændur þar sem ráðamönnum hafi verið grafalvarleg staða bankakerfisins ljós en engu að síður leyft kaup og sölu á hlutabréfum í bankanum. Eftir að íslenska ríkið ákvað að leggja Glitni til nýtt hlutafé að upphæð 600 milljónir evra og verða með því eigandi 75% hlutar í bankanum töldu margir að bankanum hefði þar með verið bjargað. Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, sagði í útvarpsviðtali síðar sama dag að ekki væri ástæða til að ætla annað en að vel myndi ganga hjá Glitni í framtíðinni og ríkissjóður myndi innan tíðar losa sig við hlutabréfin og vonandi hafa af því fjárhagslegan ávinning. En Glitnir féll, líkt og hinir bankarnir, aðeins um viku síður. Engu að síður var opið fyrir viðskipti með hlutabréf í Glitni hjá Kauphöllinni, þessa örlagaríku viku fyrir hrun. Guðmundur Jón Matthíasson var einn þeirra sem stefndu ríkinu, Fjármálaeftirlitinu og Kauphöllinni og var dæmt í máli hans í morgun. „Þarna er bara saklaust fólk sem sér kauptækifæri í þessum banka og telur þetta vera orðin tryggasta banka landsins. Það kaupir þarna í góðri trú hlutabréf í bankanum til þess eins að horfa upp á það að ríkið lætur bankann fara á hausinn sjö dögum síðar," sagði Guðmundur Jón í samtali við Stöð 2 og Vísi áður en stefnan var lögð fram í fyrrasumar.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira