Bolungarvík krefst þess að ráðuneyti virði samninga 20. júní 2012 05:30 Bæjaryfirvöld hafa krafið innanríkisráðuneytið um uppfyllingu samkomulags við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um niðurfellingu 73 milljóna króna skuldar við Íbúðalánasjóð.
Bolungarvíkurkaupstaður hefur sent innanríkisráðuneytinu erindi og krafist niðurfellingar tugmilljóna skulda á félagslegu húsnæði. Samningur er til þar um. Íbúðalánasjóður hafnar niðurfellingunni. Sveitarstjórn Bolungarvíkur hefur sent innanríkisráðuneytinu erindi þar sem þess er krafist að staðið verði við samkomulag um frekari niðurfellingu skulda á félagslegu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið gerði samning við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna þess efnis. Bolungarvík hefur staðið við sinn hluta samkomulagsins. Samkomulagið, sem gert var í lok árs 2008 og byrjun 2009, gerir ráð fyrir því að Bolungarvík grípi til ýmissa aðgerða, svo sem niðurskurðar, frestunar á þegar gerðum framkvæmdasamningum, álagi á útsvar og hækkun á þjónustutekjum. Á móti yrði 146 milljón króna skuld á félagslegu íbúðarhúsnæði aflétt. Nefndin leitaði eftir aðgerðum Íbúðalánasjóðs og stjórn hans samþykkti í janúar 2009 að afskrifa að fullu helming þeirrar upphæðar, eða 73 milljónir. Afborganirnar af öðrum 73 milljónum yrðu frystar í eitt ár. „Að því tímabili loknu verði málið tekið til endurskoðunar í samráði við eftirlitsnefndina og viðkomandi ráðuneyti.“ Þegar leitað var eftir því að afgangur upphæðarinnar yrði felldur niður hafði ný stjórn Íbúðalánasjóðs tekið við. Hún hafnaði erindinu. Eftirlitsnefndin er harðorð um málið í ársskýrslu sinni fyrir árið 2011, en þar segir: „Það er alvarlegt þegar opinber aðili getur ekki staðið við þau fyrirheit, sem hann tók að sér að hafa milligöngu um með samkomulagi við lánardrottna, sökum þess að ríkisstofnun – í þessu tilviki Íbúðalánasjóður – telur sig ekki bundna af því samkomulagi sem gert var.“ Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir sjóðinn aldrei hafa verið aðila að þessu samkomulagi og þar af leiðandi ekki bundinn af því. Það sé í raun alvarlegt mál að opinber aðili eins og eftirlitsnefndin geti gert samning um aðgerðir Íbúðalánasjóðs án hans aðkomu. Sigurður segir stöðu eignanna í raun þannig í dag að þær standi undir sér. Þá sé Íbúðalánasjóður bundinn af tilmælum um að fylgja Beinu brautinni í aðgerðum í skuldamálum. Samkvæmt henni megi ekki mismuna kröfuhöfum, en sú yrði reyndin ef farið væri eftir samkomulaginu. Þá greinir nefndina og sjóðinn á um raunverulega stöðu sveitarfélagsins. „Við kynntum nefndinni okkar mat um að staða sveitarfélagsins væri mun alvarlegri en þeir teldu hana vera og þar af leiðandi teldum við að frekari aðgerða væri þörf. Við höfum ítrekað boðið þeim að fara í Beinu brautina, þar sem jafnræði kröfuhafa verði gætt. Því hefur ekki verið sinnt.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira