ÍLS sagður hlaupast frá samkomulagi 20. júní 2012 07:30 bolungarvík
Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga sakar Íbúðalánasjóð um að standa ekki við samkomulag um niðurfellingu skulda Bolungarvíkur. Sjóðurinn segist ekki vera aðili samningsins. Bolungarvík krefst aðgerða innanríkisráðuneytis. Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga segir Íbúðalánasjóð (ÍLS) ekki standa við samkomulag um fjárhagslega endurskipulagningu Bolungarvíkur, en það gerir ráð fyrir niðurfellingu skulda á félagslegu húsnæði. Í árskýrslu nefndarinnar segir að alvarlegt sé að ekki sé hægt að standa við samkomulagið „sökum þess að ríkisstofnun – í þessu tilviki Íbúðalánasjóður – telur sig ekki bundna af því samkomulagi sem gert var“. Snemma árs 2009 gerði eftirlitsnefndin samkomulag við Bolungarvík, en sveitarfélagið hafði leitað aðstoðar vegna fjárhagsörðugleika. Samkomulagið fól í sér að 146 milljónir króna af skuldum við Íbúðalánasjóð, vegna félagslegs húsnæðiskerfis, yrði aflétt. Stjórn Íbúðalánasjóðs samþykkti að afskrifa að fullu helming þeirrar upphæða, eða 73 milljónir. Afborganirnar af öðrum 73 milljónum yrðu frystar í eitt ár og málið tekið til endurskoðunar þá. Bolungarvík hefur farið eftir samkomulaginu, en þegar leitað var eftir niðurfellingu afgangs skuldarinnar var ný stjórn Íbúðalánasjóðs tekin við. Hún hafnaði því að fella skuldirnar niður. Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir sjóðinn ekki aðila að samkomulaginu. Það sé alvarlegt mál að opinber aðili eins og eftirlitsnefndin geti gert samkomulag við sveitarfélag sem geri ráð fyrir afskriftum Íbúðalánasjóðs, án þess að sjóðurinn komi þar að. Þá hafi lánastofnunum í eigu ríkisins verið uppálagt að fylgja úrræði í skuldamálum sem nefnt er Beina brautin. Samkvæmt því megi ekki mismuna kröfuhöfum. „Ef við höldum okkur við gömlu aðferðafræðina þá skapast fordæmi sem mundi kosta Íbúðalánasjóð fleiri milljarða í óþarfa afskriftir og það lendir á skattgreiðendum.“- kóp / sjá síðu 12
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Sjá meira