Upptaka evru er háð skilyrðum Þórhildur Hagalín skrifar 28. júní 2012 06:00 Af Evrópuvefnum. Getum við tekið upp evru ef við göngum í Evrópusambandið? Aðildarríki Evrópusambandsins geta ekki bara tekið upp sameiginlega mynt sambandsins, evru, heldur ber þeim að gera það. Á meðal markmiða sambandsins er „að koma á efnahags- og myntbandalagi þar sem evra er gjaldmiðillinn". Í sáttmálum Evrópusambandsins eru þau aðildarríki sem ráðið hefur ekki tekið ákvörðun um hvort uppfylli nauðsynleg skilyrði fyrir því að taka upp evruna kölluð aðildarríki með undanþágu. Sautján aðildarríki Evrópusambandsins nota evruna sem gjaldmiðil og tilheyra þar með evrusvæðinu. Tvö aðildarríki, Bretland og Danmörk, hafa formlega samið um varanlega undanþágu frá því að vera skuldbundin til að taka upp evruna. Eftir standa átta aðildarríki með undanþágu sem eru mislangt á veg komin með að uppfylla Maastricht-skilyrðin, sem öll ríki þurfa að fullnægja til að geta tekið upp evru sem gjaldmiðil. Skilyrðin lúta að meginþáttum efnahagsmála: verðbólgu, vöxtum, stöðugleika í gengismálum auk afkomu hins opinbera og skuldum þess. Þau eru: Verðstöðugleiki. Verðbólga skal ekki vera meira en 1,5 prósentum hærri en meðaltal verðbólgu í þeim þremur ESB-löndum sem hafa hagstæðustu verðbólguþróunina. Vaxtamunur. Nafnvextir langtímaskuldabréfa skulu ekki vera meira en tveimur prósentum hærri en langtímavextir í þeim þremur ESB-löndum sem hafa hagstæðustu verðbólguþróunina. Stöðugleiki í gengismálum. Ríki skal hafa verið aðili að gengissamstarfi Evrópu (ERM II) í að minnsta kosti tvö ár án gengisfellingar. Gjaldmiðill ríkisins má ekki sveiflast um meira en ±15% í kringum það miðgildi sem ákvarðað er í ERM II. Afkoma hins opinbera. Halli á rekstri hins opinbera má ekki vera meiri en sem nemur 3% af vergri landsframleiðslu (VLF). Skuldir hins opinbera. Skuldir hins opinbera mega ekki vera meiri en sem nemur 60% af VLF eða að skuldahlutfallið stefni nægilega hratt að því marki ef það er hærra en 60%. Þátttaka í gengissamstarfi Evrópu er formlega séð valfrjáls og getur hafist hvenær sem er eftir að aðild hefst. Þó er ætlast til þess af aðildarríkjum sem ekki hafa samið um varanlega undanþágu að þau taki þátt í gengissamstarfinu á einhverjum tímapunkti. Ákveði Íslendingar að ganga í Evrópusambandið munu þeir geta tekið upp evruna sem gjaldmiðil, að uppfylltum ofantöldum skilyrðum, og verður til þess ætlast af þeim. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Halldór 18.04.2026 Halldór Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir hinsegin fólk! skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar