Innlent

Veifaði hnífi á Vesturgötunni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann sem veifaði hníf á Vesturgötunni í miðborg Reykjavíkur um klukkan hálf sjö í morgun. Þegar lögreglan kom á vettvang hafði maðurinn slíðrað hnífinn en lögreglan fann hann við leit á manninum.

Ekki er vitað hvað manninum gekk til en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn verulega ölvaður. Hann fær því að sofa úr sér og verður skýrsla tekin af honum þegar það rennur af honum.

Þá var tilkynnt um innbrot í bifreið við Bjarmaland um klukkan hálf níu í morgun. Ekki liggur fyrir hvað var tekið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×