Innlent

Skálavörður fann villta göngumenn

Frá Þórsmörk.
Frá Þórsmörk.
Par sem var í gönguferð á Rjúpnafelli í Þórsmörk villtist af leið og lenti í sjálfheldu í gærkvöldi. Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli og Bróðurhöndin undan Eyjafjöllum voru kallaðar út til leitar.

Fimmtán björgunarsveitarmenn fóru af stað en skálavörður í Langadal fann fólkið og aðstoðaði það niður. Var þá björgunarsveitunum snúið við




Fleiri fréttir

Sjá meira


×