Innlent

Reyndi að smygla kókaíni til landsins

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur.
Karlmaður um fimmtugt situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla um 370 grömmum af kókaíni til landsins.

Maðurinn sem er útlendur var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins frá Lundúnum samkvæmt vf.is.

Við hefðbundið eftirlit tollgæslu kom upp rökstuddur grunur um að hann væri með fíkniefni á sér. Svo reyndist vera, því efnin faldi hann innvortis. Lögreglan á Suðurnesjum handtók hann og flutti á lögreglustöð. Hann var síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald. Rannsókn málsins er á lokastigi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×