Innlent

Lögreglan rannsakar mann sem býst til þess að laga stéttir

Lögreglunni á Suðurnesjum bárust í vikunni tvær tilkynningar um grunsamlegan mann sem færi um Reykjanesbæ og byði húsráðendum að laga stéttar við hýbýli þeirra samkvæmt fréttavef Víkurfrétta.

Í öðru tilvikinu kom karlmaður, af erlendu bergi brotinn, á bílaleigubíl og bauð húsráðanda að steypa nýja stétt við heimili hans. Í hinu tilvikinu bankaði karlmaður, einnig af erlendu bergi brotinn, upp á hjá húsráðanda og bauðst til að malbika stéttina fyrir hann. Í þetta skiptið var sá vinnufúsi á hvítum Peugeot sendiferðabíl. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×