Brýnt að kenna börnum forritun snemma 3. júní 2012 19:00 Háskólinn í Reykjavík
Það má í raun segja að börn í dag kunni að lesa en ekki að skrifa, út frá tækninni. Þetta segir framkvæmdastjóri menntafyrirtækisins Skema sem ætlar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík að efla kennslu barna í forritun, ekki síst með þarfir atvinnulífsins í huga. Markmiðið fyrirtækisins Skema sem er að útbúa námsgögn fyrir kennslu í forritun í grunnskólum landsins og að forritun verði hluti af námi í að minnsta kosti 70 prósent grunnskóla landsins innan þriggja ára. „Kennarar eru frekar hræddir í dag við tækina, sú hræðsla smitast til nemenda og afleiðingin er að of fáir sækja í tækninám. Það er meira verið að sækja í félagsbrautir og annað slíkt," segir Rakel Sölvadóttir, framkvæmdastjóri Skema. Rakel vill gefa kennurum og börnum tækifæri á að útvíkka kennsluaðferðir og nýta forritunarumhverfið til að leysa verkefni í öðrum námsgreinum. Mikilvægt sé að kenna börnum snemma á tungumál tölvanna - helst fyrir tólf ára aldur. „Forritun er í raun tungumál. Það er bara samskiptamiðill milli manns og tölvu í stað tveggja manneskja," útskýrir hún. Rakel segir að þótt börn séu flink við að nota tækni skilji þau ekki hvað knýr hana áfram. „Það má eiginlega segja að börn í dag kunni að lesa en ekki skrifa út frá tækninni og við værum í svolítið slæmum málum ef við myndum sleppa skriftarkennslunni í dag." Skema hefur að undanförnu staðið fyrir námskeiðum fyrir börn á aldrinum sex til sextán ára og segir Rakel það það hafa gengið vonum framar að ná fram vitundarvakningu í samfélaginu og menntakerfinu um mikilvægi forritunar. Háskólinn í Reykjavík hefur sýnt málinu áhuga. Ari Kristinn Jónsson, rektor í háskólanum byrjaði ungur að forrita og starfaði lengi sem forritari á vegum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA. Hann segir að í dag fái hann sjaldnast tækifæri til að forrita en vill miðla þekkingunni til barna þeim til gagns og gamans en líka með þarfir atvinnulífsins í huga. „Háskólinn í Reykjavík er í samstarfi við Skema um að efla forritunarkennslu fyrir börn og gera forritun aðgengilega fyrir börn. Háskólinn í Reykjavík er stærsti tækniháskóli landsins og vill sinna atvinnulífinu og þörfum þess fyrir tæknimenntað fólk. Eitt af því sem þarf að gera er að vekja áhuga barna snemma á tækni svo þau hugsi til þess þegar þau leita framtíðarleiðar," segir Ari.
Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fleiri fréttir ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Sjá meira